Páskafrí
til 07.4.
Lykildagsetningar skólaársins, í lista eða dagatali, með áskrift í þitt eigið dagatal.
til 07.4.
10:15 · Gróska, 3.hæð · Hönnunardeild
Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) í samstarfi við CCP býður í samtal um skapandi greinar miðvikudaginn 8. apríl klukkan 10:15 – 11:45 í húsakynnum CCP Í Grósku, 3. hæð, að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík.13:00 · Fyrirlestrasalur, L193, Laugarnes · Myndlistardeild
Ívar Valgarðsson myndlistarmaður mun fjalla um sýninguna Úthaf / Ocean sem sett var upp í Listasafni Reykjanesbæjar árið 2025 auk fleiri sýninga. Sýningin Úthaf var sérstaklega unnin fyrir Listsafn Reykjanesbæjar en kveikjan að verkinu er hafið sem umlykur Reykjanesbæ og áhrif birtu og veðurs á litbrigði þess. Ívar leggur áherslu á einfaldleika, hreinan efnivið og beina upplifun áhorfandans sem birtist í því hvernig ljósmyndir og málverk eru sett fram sem ein rýmisleg eining. Verk Ívars hvíla á arfleið konseptlistar og minimalisma og spyrja áleitinna verufræðilegra spurninga um eðli listarinnar og efnisheimsins.12:15 · Dynjandi, Skipholt 31, 105 Reykjavík · Tónlistardeild
Samhengi býður velkomin raftónlistarhljómsveitina sideproject föstudaginn 10. apríl með fyrirlesturinn sideproject - hardcoresúpa. Á fyrirlestrinum munu þeir taka fyrir þær hugmyndir sem hafa mótað þá, nálganir í lifandi flutningi á raftónlist, stefnur og strauma í samtíma raftónlist og samstarf þeirra við plötuútgáfuna SVBKVLT sem spratt upp úr raftónlistarsenu Shanghai árið 2013. Viðburðurinn fer fram í Dynjanda, húsi Tónlistardeildar, Skipholti 31. Öll hjartanlega velkomin!12:15 · Bratti, Stakkahlíð · Arkitektúrdeild
Transforming landscapes and urban environments in relation to sustainability and sufficiency need to develop methodologies and tools for evaluating and valorizing some abandoned spaces: for example, dismissed areas linked to pre-existing industrial or military complexes that have significant dimensions and strategic positions.15:00 · Skriða, Stakkahlíð 1 · Tónlistardeild
Þriðjudaginn 14. apríl fer fram verðlaunaafhending og úthlutun úr sjóði Halldórs Hansen. Viðburðurinn fer fram í Skriðu, Stakkahlíð 1 og hefst kl.15:00.12:15 · Bratti, Stakkahlíð 1 · Arkitektúrdeild
Aðalfundur Hollnemafélags Listaháskóla Íslands verður haldinn miðvikudaginn 15. apríl kl. 12:15-13:00 í Stakkahlíð 1.16:00 · Dynjandi · Tónlistardeild
Skerpla býður til hlustunarsamveru í Dynjanda miðvikudaginn 15. apríl kl. 16:00 Á dagskrá er útvarpsþáttur eftir Skerplu um drauga og mæri. Þátturinn tekur um klukkustund í flutningi.12:15 · Bratti, Stakkahlíð · Hönnunardeild
This lecture explores how long-established Japanese companies make decisions and sustain continuity over generations. Based on field research with traditional businesses, it highlights a distinctive decision-making model shaped by culture rather than short-term economic rationality. Instead of optimizing for a single metric such as profit, these companies balance multiple perspectives, including customers, employees, community, and even predecessors. A key concept is “visible stakeholders,” where decision-makers refer not to abstract categories but to specific people and relationships grounded in experience. This creates a process in which diverse considerations are not eliminated but integrated into a final decision. While this approach may appear slow, it enables long-term trust and resilience. The lecture also connects this model to contemporary discussions on diversity, suggesting that the challenge is not diversity itself, but how to integrate multiple perspectives into coherent decisions.12:30 · Dynjandi · Tónlistardeild
Verið velkomin á lokatónleika söngnemenda í raddspunaáfanga fimmtudaginn 16.apríl kl 12:30 í Dynjanda, Skipholti 31. Á þessu námskeiði höfum við kafað djúpt í eðli spunans og skoðað hvernig raddir sameinast í skapandi flæði án nokkurra hljóðfæra – önnur en röddina sjálfa. Tónleikarnir eru opnir öllum.12:15 · Dynjandi, Skipholt 31, 105 Reykjavík · Tónlistardeild
Samhengi býður velkominn Paolo Picchio tónlistarfræðing, harmonikuleikara, útsetjara, tónskáld og framkvæmdastjóra Bugari Armando harmonikuframleiðandans í Castelfidardo föstudaginn 17. apríl. Í fyrirlestri sínum, segir Paolo frá því hvernig Astor Piazzolla kom til með að skapa sína eigin tónlistarstefnu, Nuevo Tango – stefnu sem á rætur í tangó en þróaðist síðar yfir í að sameina margar aðrar tónlistarstefnur og stíla og heilla aðdáendur á öllum aldri og af ólíkum kynslóðum. Viðburðurinn fer fram í Dynjanda, húsi Tónlistardeildar, Skipholti 31. Öll hjartanlega velkomin!20:00 · Salurinn Tónleikahús · Tónlistardeild
Þann 18. apríl kl. 20 sameinast í Salnum í Kópavogi nokkrir af fremstu harmoniku- og bandóneonleikurum heims og flytja tónverk meistara Astor Piazzolla sem skapaði Tango Nuevo og gjörbreytti heimsmynd tangósins.12:15 · Bratti, Stakkahlíð · Arkitektúrdeild
The conservation, maintenance, and repair of the built environment have recently taken center stage in architectural discourse. This shift is driven by the urgent need to adopt sustainable approaches and concepts such as circular economy and reuse. However, to achieve a significant change in practice—moving away from demolition and replacement towards preserving existing structures—universities must educate a generation of “sustainable natives” who value what has already been built, while also challenging established building practices through the integration of novel methods and technologies across generations and disciplines.12:30 · Dynjandi · Tónlistardeild
Verið velkomin á lokatónleika í hljóðfæraspuna þriðjudaginn 21.apríl kl 12:30 í Dynjanda, Skipholti 31. Á þessu námskeiði höfum við kafað djúpt í eðli spunans og skoðað hvernig raddir og hljóðfæri sameinast í skapandi flæði og hvað gerist þegar við stillum okkur saman í lifandi gjörningi.. Tónleikarnir eru opnir öllum.16:00 · H003, Hamar Stakkahlíð 1 · Arkitektúrdeild
Listaháskóli Íslands boðar til ársfundar þriðjudaginn 21. apríl 2026 kl. 16:00. Fundurinn fer fram í fyrirlestrasal H003 í Hamri, Stakkahlíð 1. Á fundinum kynna stjórnendur starfsemi og rekstur skólans og í kjölfarið opnað fyrir spurningar og umræður. Fundurinn er opinn öllum.12:15 · Dynjandi, Skipholt 31, 105 Reykjavík · Tónlistardeild
Samhengi býður velkominn Asher Ian Armstrong píanóleikara, föstudaginn 24. apríl. Samhengi verður að þessu sinni í formi tónleika undir nafninu Luminaries þar sem kastljósinu er beint að fjölbreyttum og lítt þekktum hluta píanóbókmenntanna, verkum kventónskálda sem hafa lengi staðið í skugga hinna sígildu meistara. Viðburðurinn fer fram í Dynjanda, húsi Tónlistardeildar, Skipholti 31. Öll hjartanlega velkomin!19:00 · Flói, Harpa · Hönnunardeild
Á sýningunni kynna nemendur BA útskriftarverkefni sín frá Listaháskóla Íslands. Lokaverkefni nemenda í fatahönnun er einstaklingsverkefni sem samanstendur af frjálsri rannsókn, hönnun og gerð á línu af tískufatnaði undir handleiðslu leiðbeinenda.19:30 · Eldborg, Harpa, Austurbakka 2 · Tónlistardeild
Ungir einleikarar er samstarfsverkefni Listaháskóli Íslands og Sinfóníuhljómsveit Íslands þar sem framúrskarandi nemendur fá tækifæri til að koma fram sem einleikarar með hljómsveitinni í Eldborg. Viðburðurinn fer fram 24. apríl kl. 19:3018:00 · Bíó Paradís · Hönnunardeild
Linda van Deursen flytur opinn fyrirlestur mánudaginn 27. apríl kl. 18:00 í Bíó Paradís. Fyrirlesturinn er á vegum Listaháskóla Íslands og Félags íslenskra teiknara.16:00 · Fjara, Stakkahlíð 1 · Hönnunardeild
Beneath / Between / Beyond brings together projects from the MA in Design and New Environments that rethink how systems shape everyday life in Iceland. Working with energy, water, materials, food production, urban space, and creative practice, the projects engage infrastructures and environments that are usually out of sight or taken for granted.til 03.5. · L142, Laugarnes · Sviðslistadeild
Ég er bara hérna vegna þess að pabbi vildi ekki borga fyrir miðil.til 10.5. · Ýmis rými í LHÍ Laugarnesi · Sviðslistadeild
8 nemendur á öðru ári á sviðshöfundabraut flytja einstaklingsverk sín sem þau hafa unnið að síðastliðnar 6 vikur. Frítt inn og opið öllum. Miðabókanir fara fram á www.tix.isStóra Black boxið, Laugarnes · Sviðslistadeild
„Haltu mér, Ping! Ekki sleppa mér, Pong! Og þannig erum við PingPong." Sagan af Ping & Pong - The Musical er splunkunýtt rytmískt verk um ástarævintýri Ping og Pong, og drauminn um að sameinast. Hvað gerist þegar keppnisskapið vaknar til lífsins og tvíhyggjan bankar að dyrum?09:00 · til 30.4. · Tjarnarsalur, Ráðhús Reykjavíkur · Hönnunardeild
You are warmly invited to attend, listen, and join the discussion. The 4th-year architecture students in the Architectural department at the Icelandic School of the Arts (LHI) will hold their final critique in Tjarnarsal at City Hall on April 29th, from 9:00. An exhibition opening will follow at 17:00. The exhibition will be open until April 30th. at 18:00.til 05.5. · L142, Laugarnes · Sviðslistadeild
HRYLLINGSVERK er hryllingsverk, myrkraverk, illverk. Hvað gerist þegar sjónin hverfur og myrkrið umlykur þig? Og hvað varð um Þórhall?til 02.5. · Stóra Black boxið, Laugarnes · Sviðslistadeild
Í skugga kjarnorkuslyss í Sovétríkjunum kemur hrakinn útlendingur að bæ í íslenskri sveit. Í kjölfarið fylgir röð atburða sem hefur áhrif á líf allra í sveitinni til frambúðar. Á sama tíma tekst ekkja í Reykjavík samtímans á við lífið eftir dauðann. Gömul svik koma upp á yfirborðið og logar enn í gömlum glæðum. Útlendingurinn er saga úr íslenskum veruleika sem fléttar saman vöku og draumi, fortíð og framtíð.til 04.5. · L220, Laugarnes · Sviðslistadeild
ÚPS! er nýtt samsköpunar- og samsteypuverk í leikstjórn hins umdeilda og sprenghlægilega Sindra Snæs Jónssonar, en verkið er unnið út frá viðtali sem var útvarpað á Útvarpi sögu árið 2020. Þið viljið ekki missa af þessari bombu ... komið og fáið það úr hlátri!til 17.5. · Nýlistasafnið · Myndlistardeild
Að þessu sinni sýna níu nemendur verk sín á sýningu í Nýlistasafninu. Eins og gefur að skilja er hér ekki um þematíska samsýningu að ræða heldur samsýningu þar sem hópur fólks sem hefur lagt stund á meistaranám undanfarin tvö ár sýnir verk sín. Meistaranám í myndlist er afar krefjandi nám og hafa þau öll skoðað og greint í þaula starfsaðferðir sínar og nálgun. Sýningin í Nýlistasafninu er síðasta varðan á þessari vegferð, nemendur sýna verk sín í opinberu safni og ganga þar með inn á fagvettvanginn á formlegan og táknrænan hátt.Slökkvistöðin Gufunesi · Hönnunardeild
Sýningin Computer says "hello" er afrakstur námskeiðsins „Gervigreind og…“ undir handleiðslu Önnu Diljá Sigurðardóttur, þar sem 2. árs vöruhönnunarnemar fengu rými til að stíga út fyrir kassann og rannsaka ókannaðar slóðir gervigreindar. Um er að ræða fjölbreytt samansafn verka sem kanna heim gervigreindar og skoða möguleg tækifæri og áhrif hennar á nútíma og framtíð. Sýningaropnun er 4. maí kl 18 til 21 í Slökkvistöðinni í Gufunesi.17:00 · til 10.5. · Gróska · Arkitektúrdeild
102 Reykjavík 2050 er verkefni sem nemendur á öðru ári í arkitektúr hafa verið að fást við á námskeiðinu Borgarmótun / Urban Lab Agency í Listaháskóla Íslands. Á fyrri hluta námskeiðs, á haustönn, greindu nemendur svæðið 102 Reykjavík og hönnuðu nýtt borgarskipulag á völdum svæðum með framtíðarsýn fyrir árið 2050 að leiðarljósi. Á vorönn hafa 13 nemendur hannað 500-1500m2 af byggðu rými með áherslu á að samþætta íbúðarhúsnæði og aðra starfsemi. Markmiðið er að skapa fjölbreytt, lifandi og sjálfbært borgarumhverfi þar sem ólík notkun getur styrkt hvert annað. Verkefnin eru ýmist ein bygging eða samstæða bygginga og taka bæði til innanhúss- og utanhússrýma.til 10.5. · L141, Laugarnes · Sviðslistadeild
Fáir aðilar vita jafn vel, hverju Ísland þarf á að halda heldur en bræðurnir Snorri og Beggi, að þeirra mati hefur okkur tekist að skapa samfélag þar sem að allir lifi í sátt og samlyndi. Þeim er því ærlega brugðið í brún þegar stærsta ógn sem bæði þeir og Ísland sjálft hefur nokkurn tíman séð mætir á svæðið, ógn sem ætlar með góðu eða illu, að hrifsað í burtu allt sem þeir hafa elskað í einni svipan. Aðeins þeir geta komið í veg fyrir að samfélagið , steypist ekki í glötun En hafa þeir það sem til þarf?til 10.5. · L220, Laugarnes · Sviðslistadeild
Prófaðu að loka hægra auganu. Sérðu? Stríðið er að byrja. Stríðið til að enda öll stríð. Síðasta stríðið. Þriðja heimsstyrjöldin. Síðasta heimsstyrjöldin. Stríðið til að klára af öll stríð í því sem eftir er mannkynssögunni. Ég vil vera sæt þegar sagan klárast. Er í lagi með hárið á mér?17:00 · Turnin í Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegur 14. · Hönnunardeild
Uppspretta er afrakstur áfangans Hönnun í samhengi þar sem nemendur hafa rannsakað og unnið verkefni um mikilvægi vatns í öllum sínum birtingarmyndum undir handleiðslu Rúnu Thors auk aðkomu fjölda leiðbeinenda og gestafyrirlesara17:00 · Portið, Listaháskóli Íslands, Laugarnesi · Arkitektúrdeild
Nemendur á 1. ári í arkitektúr bjóða ykkur velkomin á lokasýninguna þeirra Skýli næstkomandi miðvikudag þann 6. maí frá kl 17:00 - 20:00 í LHÍ/Laugarnesi.til 09.5. · L221, Laugarnes · Sviðslistadeild
Möndlukaka og coke í gleri, sterkur ilmur, berdreymi í beinan kvenlegg og Fuglastríð á spólu. Í einleiknum Eyður tekst Ragnheiður á við eigin fjölskyldusögu og reynir að fylla í eyður sem enn eru tómar.18:00 · til 10.5. · Rafnar, Geirsgötu 11 · Hönnunardeild
Verið velkomin á sýningu Rafnar, Vöruhönnunarbrautar Listaháskóla Íslands, Félags Húsgagna og Innanhússarkitekta, FLÖFF og MADNE - Meistaranema í Design & New Enviornments sem fer fram að Geirsgötu 11 á tímabilinu 07.05 - 10.05. Um er að ræða fimm ólíkar sýningar sem mætast á gömlu höfninni í Reykjavík - sjá lýsingar að neðan:20:00 · til 09.5. · Svarta Boxið, LHÍ Laugarnesi · Tónlistardeild
Söngnemendur Listaháskóla Íslands sýna óperuna Hans og Grétu eftir tónskáldið Engelbert Humperdinck þann 8. Maí kl.20 og 9. maí kl.15 í Svarta boxinu, húsnæði Listaháskóli Íslands í Laugarnesi.til 15.5.
19:00 · Rafnar, Geirsgötu 11 · Hönnunardeild
Tónlist - Drykkir - Hönnun - Leiðsagnir í gegnum sýningar Vöruhönnunarbrautar Listaháskóla Íslands, Félags Húsgagna og Innanhússarkitekta, FLÖFF og MADNE - Meistaranema í Design & New Enviornments. Hlökkum til að taka á móti ykkur og ræða mikilvægi íslenskrar framleiðslu með góðan drykk í hendi.13:00 · til 17.5. · Hafnarhús · Arkitektúrdeild
Listasafn Reykjavíkur hýsir útskriftarsýningu nemenda á BA stigi í myndlistardeild, hönnunardeild og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Opnun á sýningunni verður 9.05 kl.13:0014:00 · Nýlistasafnið · Myndlistardeild
Verið velkomin á listamannaspjall í tengslum við sýninguna „Setlög ljóss og tíma“. Sunnudaginn 10. maí kl. 14:00–15:00 munu Irene Hrafnan, Steinunn Önnudóttir og Kristín Einars Cavan segja frá verkum sínum. Samtalið leiðir Hildur Bjarnadóttir, prófessor og fagstjóri meistaranáms í myndlist Sunnudaginn 17. maí kl. 16:00–17:00, á síðasta degi sýningarinnar, munu Lucrezia Costa, Mirjam Maekalle, Sarah Moore, Sepideh Safiyari og Svend Holmboe Pedersen kynna verk sín fyrir gestum.17:00 · til 16.5. · Ýmsir staðir · Tónlistardeild
Brautartónleikar hljóðfæradeildar verða haldnir dagana 11.–16. maí þar sem nemendur sýna afrakstur vetrarins í fjölbreyttri og metnaðarfullri dagskrá. Öll hjartanlega velkomin - frír aðgangur.19:00 · Tónastöðin, Skipholti 50d · Tónlistardeild
Nemendur LHÍ í Tónlist · Nýsköpun · Tækni sýna afrakstur vetrarins á tónleikum í Tónastöðinni, Skipholti 50d mánudaginn 11. maí kl. 19:00. Aðgangur ókeypis - öll hjartanlega velkomin!15:00 · Hafnarhús · Arkitektúrdeild
Fimmtudaginn 14. maí er hægt að fá leiðsögn sýningarstjóra á Útskriftarsýningu í arkitektúr, hönnun og myndlist.18:00 · Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús · Hönnunardeild
ÉG ELSKA TATTOO – pop-up á safninu17:00 · til 23.5. · Herma, Hverfisgötu · Hönnunardeild
Welcome to New Environments, an exhibition presenting the final projects of students graduating from the MA Design and New Environments programme at Iceland University of the Arts.16:00 · Nýlistasafnið · Myndlistardeild
Verið velkomin á listamannaspjall í tengslum við sýninguna „Setlög ljóss og tíma“. Sunnudaginn 17. maí kl. 16:00–17:00, á síðasta degi sýningarinnar, munu Lucrezia Costa, Marco Dorn, Mirjam Maekalle, Sarah Moore, Sepideh Safiyari og Svend Holmboe Pedersen kynna verk sín fyrir gestum. Samtalið leiðir Sigrún Inga Hrólfsdóttir, prófessor og sýningarstjóri sýningarinnar. Við hlökkum til að sjá ykkur.10:00 · til 20.5. · LHÍ STAKKAHLÍÐ - Stofa H003 jarðhæð · Listkennsludeild
Listkennsludeild Listaháskóla Íslands stendur fyrir útskriftarviðburði 19.-20. maí 2026. Viðburðurinn er hluti af útskriftarhátíð Listaháskóla Íslands og þar kynna verðandi kennarar og meistaranemar í listum og velferð lokaverkefni sín. Dagskrá er opin öllum.13:00 · til 31.5. · Safnahúsið Hverfisgötu · Arkitektúrdeild
The fifth year of architectural education at the Iceland University of the Arts is devoted to further exploring and expanding both the meaning and scope of architecture and architects’ societal responsibility.19:00 · Tónlistarskóli Garðabæjar · Listkennsludeild
19:00 · til 28.5. · Bíó Paradís · Kvikmyndalistadeild
Kvikmyndahátíðin Filma verður haldin að þessu sinni dagana 26. - 28. maí nk. í Bíó Paradís, þar sem allir nemendur Kvikmyndalistadeildar Listaháskóla Íslands sýna verk sín áhorfendum. Sýningarnar verða samtals 4 í ár og öll hjartanlega velkomin. Miðasala fer fram á tix.is19:30 · Silfurberg, Harpa · Tónlistardeild
Hljómsveitin Korda Samfónía heldur útgáfutónleika 26. maí kl. 19:30 í Silfurbergi í Hörpu. Tilefnið er útgáfa annarrar breiðskífu hljómsveitarinnar, sem ber heitið Ný vídd. Miðasala er hafin á harpa.is.21:00 · til 06.6. · Rými L143 , LHÍ Laugarnesi · Tónlistardeild
Naked Soul is an exploration of the senses through a 100-speaker sound system, designed and built by Rashelle Reyneveld. Open installation: Friday June 5th 15:00–17:00 Performance: Friday June 5th and Saturday June 6th at 21:00. Book your place through rashelle24@lhi.is or on the FB event.til 26.6. · LHÍ Stakkahlíð · Sviðslistadeild
Norræna Dansfræðafélagið (NOfOD) stendur fyrir sinni 17. alþjóðlegu ráðstefnu dagana 23. - 26. júní næstkomandi. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Listaháskóla Íslands og fer fram í húsnæði skólans í Stakkahlíð.til 03.8.
til 21.8.
12:15 · Bratti · Listkennsludeild
Dr. Michele Mangini, prófessor við lagadeildina við Háskólann á Bari á Ítalíu hefur dvalið sem gestaprófessor við Listkennsludeild Listaháskóla Íslands. Af þessu tilefni heldur Mangini opinn fyrirlestur fimmtudaginn 27. ágúst n.k. kl. 12:15–13:00. Á fyrirlestrinum kynnir Mangini bókarkaflann Education for reasonable flourishing úr væntanlegri bók hans: A CONSERVATIVE THEORY OF REASONABLE FLOURISHING. Fyrirlesturinn fer fram í Bratta, Stakkahlíð 1, sem nú er aðalbygging Listaháskóla Íslands. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er öllum opinn.13:00 · Fyrirlestrasalur L193, Laugarnes · Myndlistardeild
Í fyrsta fyrirlestri Myndlistardeildar haustið 2026 fjallar sýningastjórinn Unnar Örn um framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum 2026.17:00 · Dynjandi, Skipholt 31 · Tónlistardeild
The pre-listening party for the upcoming album Demonic Activity by Þórður Ingi Jónsson (aka Lord Pusswhip).17:00 · til 11.9. · Stakkahlíð 1 · Allar deildir
Hugarflug, fimmtánda árlega ráðstefna Listaháskóla Íslands, er vettvangur fyrir opna, faglega og gagnrýna umræðu um listir, hönnun, arkitektúr og tengd svið. Hugarflug 2026 verður haldin dagana 9.-11. september í Reykjavík. Þema ráðstefnunnar í ár er heimur skynjunar.11:45 · Dynjandi - Skipholt 31 · Tónlistardeild
Nemendur Leading and Guiding námskeiðsins sýna afrakstur vinnu sinnar með tónlist frá Gíneu í opnum tíma í Dynjanda.17:00 · til 26.11. · Laugarnes · Myndlistardeild
Á tímabilinu 17. september - 26. nóvember stendur yfir röð einkasýninga útskriftarnema í bakkalárnámi í myndlist, alls 28 talsins.til 20.9. · Kubbur - Laugarnes · Myndlistardeild
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.til 20.9. · Nafli - Laugarnes · Myndlistardeild
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.12:15 · Dynjandi - Skipholt 31 · Tónlistardeild
Samhengi býður velkominn Brandon LaBelle með erindið Poetics of Listening.16:00 · Verksmiðjan á Hjalteyri · Myndlistardeild
Samsýning meistaranema í myndlist í Verksmiðjunni á Hjalteyri.12:15 · Dynjandi - Skipholt 31 · Tónlistardeild
Nemendur LHÍ flytja sönglög Rachmaninovstil 26.9. · Nafli - Laugarnes · Myndlistardeild
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.til 27.9. · Hulduland - Laugarnes · Myndlistardeild
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.til 27.9. · Kubbur - Laugarnes · Myndlistardeild
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.til 02.10. · Enni · Arkitektúrdeild
Frá 24. september til 2. október verður til sýnis úrval verka eftir Teiknistofuna Óðinstorgi (1965 - 2005). Á sýningunni verða til sýnis líkön og teikningar sem unnar voru á fyrstu vikum haustmisseris 2026 í námskeiðinu “sameiginlegar rannsóknir fram til hönnunarlausna”.13:00 · Laugarnes lecture hall, L193 · Myndlistardeild
This is the second lecture in a lecture series held each semester at the Department of Fine Arts at IUA. In seven lectures during the semester, experts in the field of visual art discuss their own research, experiments, and artistic practice.til 27.9. · Stóra black box, L223 - LHÍ Laugarnesi · Sviðslistadeild
Áður en ég fer… er þátttökuverk þar sem við gefum okkur tíma til að skoða ummerkin sem við skiljum eftir okkur í rýmum, hlutum og hvert öðru. Enginn leikari, bara þú í sviðsettu landslagi þar sem forvitnin fær að ráða för…áður en þú ferð.20:00 · Stúdentakjallarinn · Tónlistardeild
Við hefjum aftur notalegu tónleikaröðina Rytmísk kvöld í Stúdentakjallaranum 28. september og 16. nóvember kl. 20:00. Komdu og njóttu góðrar stemmningar og ljúfra tóna.til 04.10. · Nafli - Laugarnes · Myndlistardeild
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.til 04.10. · Hulduland - Laugarnes · Myndlistardeild
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.Kubbur - Laugarnes · Myndlistardeild
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.13:00 · Laugarnes lecture hall, L193 · Myndlistardeild
This is the third lecture in a lecture series held each semester at the Department of Fine Arts at IUA. In seven lectures during the semester, experts in the field of visual art discuss their own research, experiments, and artistic practice.12:15 · Dynjandi - Skipholt 31 · Tónlistardeild
Samhengi býður velkominn tónlistarstjóra Óperunnar Richard Schwennicke með erindið What Makes a Good Opera and How Do You Rehearse It.til 11.10. · Nafli - Laugarnes · Myndlistardeild
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.til 11.10. · Hulduland - Laugarnes · Myndlistardeild
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.til 11.10. · Kubbur - Laugarnes · Myndlistardeild
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.13:00 · Laugarnes lecture hall, L193 · Myndlistardeild
This is the fourth lecture in a lecture series held each semester at the Department of Fine Arts at IUA. In seven lectures during the semester, experts in the field of visual art discuss their own research, experiments, and artistic practice.12:15 · Dynjandi - Skipholt 31 · Tónlistardeild
Samhengi býður velkominn Guðmund Stein Gunnarsson með erindið Hugleiðingar um vanamyndanir í tónlisttil 15.10. · Stóra black box - Laugarnesi · Sviðslistadeild
Þriðja árs leikaranemar LHÍ setja upp Þrjár systur eftir rússneska leikskáldið Anton Tsjekhov.16:30 · Laugarnes lecture hall, L193 · Myndlistardeild
Myndlist á Íslandi og Arts and Culture Magazine Publishers Forum (ACMPF) standa saman að pallborðsumræðum og opnu samtali um útgáfu sem miðlun og leið til að skapa tengsl.til 18.10. · Hulduland - Laugarnes · Myndlistardeild
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.til 18.10. · Nafli - Laugarnes · Myndlistardeild
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.til 18.10. · Kubbur - Laugarnes · Myndlistardeild
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.12:15 · Dynjandi - Skipholt 31 · Tónlistardeild
Samhengi býður velkomna tónlistarmanninn og upptökustjórann Howie B og hljóð- og myndlistarmanninn Hiraki Sawa með erindið Invert The Pyramid11:00 · til 26.10. · Daalakkersweg 14, Unit 18-1, Eindhoven · Hönnunardeild
What happens when existing systems, materials and technologies are approached differently? Looking at the future from an Icelandic point of view, not as something distant or determined, but as something being shaped in the present.18:00 · Dynjandi - Skipholt 31 · Tónlistardeild
Fauré, Scriabin, Debussy Towards the Development of a New Aesthetictil 24.10. · Hulduland - Laugarnes · Myndlistardeild
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.til 26.10. · Ýmis rými í LHÍ Laugarnesi · Sviðslistadeild
Afrakstur nemenda í Sviðshöfundanámi úr námskeiðinu, Höfundurinn. Frítt inn og opið öllum. Miðabókanir fara fram á www.tix.istil 25.10. · Nafli - Laugarnes · Myndlistardeild
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.Kubbur - Laugarnes · Myndlistardeild
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.17:00 · Dynjandi - Skipholt 31 · Tónlistardeild
Söngnemendur Listaháskóla Íslands flytja valda senur úr óperum eftir Mozart, Monteverdi og Puccini13:00 · Laugarnes lecture hall, L193 · Myndlistardeild
This is the fifth lecture in a lecture series held each semester at the Department of Fine Arts at IUA. In seven lectures during the semester, experts in the field of visual art discuss their own research, experiments, and artistic practice.12:15 · Dynjandi - Skipholt 31 · Tónlistardeild
Samhengi býður velkominn Pétur Jónasson með erindið Athygli, minnisferlar og flókið tónefnitil 30.10.
18:00 · til 31.10. · Gallery Rýmd, völvufell 17, 111 Reykjavík · Hönnunardeild
Þegar þangað verður hér er samsýning þriðja árs nema í vöruhönnun sem sýnir afrakstur áfangans Fókus. Þar fengu nemendur tækifæri til að vinna að sameiginlegu viðfangsefni undir handleiðslu Rúnu Thors. Nemendur völdu í sameiningu viðfangsefnið Útilega og unnu út frá því fjögur ólík verkefni sem deila sama þræði.19:00 · Flói, Harpa · Hönnunardeild
Misbrigði er nú unnið í tólfta sinn af nemendum á 2. ári í fatahönnun við Listaháskóla Íslands í samstarfi við Fatasöfnun Rauða kross Íslands. Verkefnið snýst um að rannsaka leiðir til að skapa nýjan fatnað úr ósöluhæfum flíkum með þekkingu, sköpun og aðferðafræði hönnunar.12:15 · Dynjandi - Skipholt 31 · Tónlistardeild
Samhengi býður velkominn harmóníkuleikarann Jónas Ásgeir Ásgeirsson með erindið Þróun nýrra verka fyrir klassíska harmóníku12:15 · Skriða - Stakkahlíð 1 · Tónlistardeild
Samhengi býður velkomin Pál Ragnar Pálsson og Tui Hirv með erindið Sagan bak við Lögin20:00 · Stúdentakjallarinn · Tónlistardeild
Við hefjum aftur notalegu tónleikaröðina Rytmísk kvöld í Stúdentakjallaranum. Síðara tónleikakvöld haustannar er 16. nóvember kl. 20:00. Komdu og njóttu góðrar stemmningar og ljúfra tóna.12:15 · Dynjandi - Skipholt 31 · Tónlistardeild
Samhengi býður velkomna tónlistarkonuna Gyðu Valtýsdóttur með erindið Þræðir – leiðir að sköpun12:15 · Dynjandi - Skipholt 31 · Tónlistardeild
Samhengi býður velkomna Þorbjörgu Daphne Hall með erindið Tónlistarháskólar og samfélagsmiðuð tónlisttil 11.12.
til 03.1.
til 05.3.
til 24.3.
til 14.5.
til 02.8.
til 20.8.
til 29.10.
Engir viðburðir fundust.
Nákvæmt háskóladagatal er að finna á annarri síðu. Þar sést yfirlit yfir skólabyrjun, skólalok, verkefnavikur, umsóknarfresti og hátíðisdaga.