Dagsetning
12. nóvember 2026 – 15. nóvember 2026
Staðsetning
Nafli - Laugarnes
Deild
Myndlistardeild
Í góðum höndum // Agnes Ásta Guðmundsdóttir
+ Bæta við

BA3 einkasýning í Naflanum
Opnun 12. nóvember 17:00 – 19:00
Einnig opið 14. & 15. nóvember 15:00 – 18:00
——

Leiðangurinn er hafinn.
Gleymdu ekki að anda.
Leyfðu loftinu að flæða inn og aftur út.
Hlustaðu. Hvað heyrirðu?
Leyfðu myrkrinu að vera.
Leggðu hægri hönd á vegginn.
Fylgdu honum eftir með fingurgómunum.
Hann kann leiðina og hjálpar þér að rata
Farðu á þínum hraða.
Hvað sástu?

Agnes vinnur þvert á miðla með forvitni og leik að leiðarljósi. Hún tekur hversdagsleg fyrirbæri úr samhengi og snýr á merkingu þeirra og virkni. Sköpun er leið til þess að kanna og skilja það sem fangar athyglina. Við endurgerð á fáránleika hins hverfula augnabliks verður sjónarhornið nýtt, en í verkum Agnesar eru gestir hvattir til þátttöku og þeir verða oft hluti af sýningunni.

——

Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.

Nánari upplýsingar um röðina má finna HÉR.

Facebook viðburður