Meginmarkmið deildarinnar er að styðja nemendur við að þróa og dýpka listræna færni; sameina handverk, gagnrýna hugsun og fræðimennsku við það besta úr samtíma sviðslistum. Nemendur útskrifast að loknu námi tilbúin til að móta sviðslistir framtíðarinnar. Útskrifaðir nemendur sviðslistadeildar gegna leiðandi hlutverki innan innlendra og alþjóðlegra sviðslista, sem og á mörgum öðrum sviðum; allt frá flytjendum til fræðimanna, leikhússtjóra, framleiðenda og höfunda.
Sýningar og viðburðir eru mikilvægur partur af námi í sviðslistadeild. Þar má nefna opnar kynningar á afrakstri námskeiða og samstarfi ólíkra námsleiða, auk einstaklingsverkefna og lokaverkefna allra brauta deildarinnar. Sýningar geta tekið form hefðbundins leikhúss, leiklestra, dansverka, sýninga í óhefðbundnum leikrýmum, gjörninga, útvarpsleikrita, þátttökuverka o.m.fl. Auk þess eru reglulega haldnar málstofur og málþing um fagleg málefni sviðslista.
Alþjóðlegt samstarf er stór hluti af starfi deildarinnar og gefst nemendum kostur á að fara í skiptinám og/eða starfsnám erlendis. Skiptinemar og kennarar frá erlendum menntastofnunum eru tíðir gestir í skólastarfinu og deildin er þátttakandi í ýmsum alþjóðlegum samstarfsverkefnum.
Sviðslistadeild á í samstarfi við helstu sviðslistastofnanir og hátíðir í landinu eins og Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið, Leikfélag Akureyrar, Íslenska dansflokkinn og Reykjavík Dance Festival og einnig í góðum tengslum við sjálfstæðu sviðslistasenuna.
Í sviðslistadeild er boðið upp á fjórar námsleiðir: leikaranám, alþjóðlegt samtímadansnám, sviðshöfundanám og meistaranám í sviðslistum. Nám til bakkalárgráðu er þriggja ára nám, 180 ECTS einingar, en nám á meistarastigi er til tveggja ára, 120 ECTS einingar. Inntökupróf er inn á allar námsleiðir deildarinnar. Þriðja hvert ár eru ekki teknir inn nýir nemendur í sviðslistadeild á BA stigi.
Umsóknarfrestir:
MA í sviðslistum
Opnar fyrir umsóknir:
Janúar 2028
Nám hefst:
Ágúst 2028
Sviðshöfundanám BA
Opnar fyrir umsóknir:
6. janúar 2027
Lokar fyrir umsóknir:
6. apríl 2027
Nám hefst:
Ágúst 2027
Leikaranám BA
Opnar fyrir umsóknir:
5. október 2026
Lokar fyrir umsóknir:
25. nóvember 2026
Nám hefst:
Ágúst 2027
Alþjóðlegt samtímadansnám BA
Opnar fyrir umsóknir:
5. október 2026
Lokar fyrir umsóknir:
25. janúar 2027
Nám hefst:
Ágúst 2027
Námsleiðir deildarinnar.
Meistaranám í sviðslistumMA
MA nám í sviðslistum er tveggja ára nám ætlað sviðslistafólki sem vilja efla færni sína og þekkingu á sviðslistum, ýmist í gegnum leikritun, leikstjórn, sviðshöfundanám eða…
SviðshöfundanámBA
Hlutverk höfundarins er í forgrunni í sviðshöfundanámi. Í náminu þróa nemendur með sér listræna sýn og sjálfstæða nálgun á sviðslistir.
Leikaranám BA
Námið veitir faglega og framsækna alhliða kennslu í leiklist og útskrifar víðsýna og skapandi leikara, sem búa yfir þeirri tækni og þekkingu sem sviðslistaumhverfi samtímans kallar…
Alþjóðlegt samtímadansnám BA
Contemporary Dance Practices inspires and challenges its students technically, contextually and artistically to enable them to develop their dance practice. Our aim is to educate creative…
Sæktu um nám við deildina.
Kynntu þér námsleiðir deildarinnar og umsóknarferlið. Alþjóðlegar umsóknir og skiptinám fara í gegnum alþjóðaskrifstofu LHÍ.



















