Leiðbeiningar um gagnasöfn, heimildaskráningu, fjaraðgang og skil á lokaverkefnum.
-
Leiðbeiningar frá Landsbókasafni um afnotaleyfi frá Creative commons fyrir fræðilega útgáfu og fræðsluefni.
-
Kennarar og nemendur LHÍ geta fengið fjaraðgang að staðarneti skólans í gegnum sk. sýndarnet (e.proxy) sem hver og einn þarf þá að setja upp aðgangstillingar að, í Firefox vafra, í sinni tölvu.
Með þessu geta notendur skoðað greinar í séráskriftum bókasafnsins sem annars eru einungis aðgengileg á tölvum á staðarneti skólans. -
Leiðbeiningar um notkun gervigreindar í Listaháskóla Íslands:
Instructions for students – AI use at IUA
-
Námi í öllum deildum skólans lýkur með lokaverkefni.
Bókasafnið varðveitir ekki prentuð eintök lokaverkefna en nemendur skila inn rafrænu eintaki af lokaverkefni á skemman.is sem er stafrænt varðveislusafn háskólanna. Lokaverkefnin má nálgast á skemman.is og leitir.is
Sniðmát lokaritgerða LHÍ (word)
-
Við skil lokaritgerða þarf að velja þá deild sem útskrifast er frá sem og námsstig: BA eða MA.
Nemendur skrá sig inn á skemman.is með LHÍ aðganginum sínum.
Mikilvægt er að klára að fara í gegnum allt ferlið. Því lýkur með því að samþykkja skilmála og senda verkið inn.
Mælst er til þess að nemendur hafi lokaritgerðir sínar opnar, ekki síst þar sem þeim gagnast að geta vísað á ritgerðir sínar að útskrift lokinni.
Höfundur þarf að skila formlegri beiðni um að láta opna áður læstri ritgerð.Skil í Skemmuna (pdf)
Skil í Skemmuna (myndband)
-
Nú geta nemendur LHÍ notað veforðabækur Snöru heima með Microsoft innskráningu.
Hér eru leiðbeiningar frá Snöru sem vonandi koma að góðum notum.
1. Farið inn á https://snara.is og þar er grænn hnappur sem stendur „Innskráning“ (ef það er enginn innskráningarhnappur eruð þið þegar með aðgang og þurfið ekki að skrá ykkur inn).
2. Þar koma upp mismunandi innskráningarleiðir og þá á að velja „Innskráning með Microsoft“
3. Því næst ertu beðinn um netfang og lykilorð (þið notið @lhi.is netfangið ykkar og lykilorð).
4. Svo þarf að staðfesta, með Authenticator (appið).
-
Zotero er forrit sem heldur m.a utan um heimildir og sækja má gjaldfrjálst á https://www.zotero.org/
Leiðbeiningamyndbönd:
Zotero – Að sækja forritiðZotero – Að sækja réttan heimildarskráningarstaðal
Ekkert fannst.
Spurningar um þetta efni?
Hafðu samband við skrifstofu skólans og við komum fyrirspurninni til réttrar deildar eða sviðs.