Leiðarljós nýrrar stefnu Listaháskólans eru þrjú og undir hverju og einu þeirra setjum við okkur þrjú megin markmið. Undir hverju meginmarkmiði höfum við skilgreint og tímasett fjöldan allan af aðgerðum sem gera okkur kleift að innleiða stefnuna með árangursríkum hætti á næstu fjórum árum. Í nýrri stefnu leggjum við áherslu á skapandi hugsun, fjölbreytileika og að vera hreyfiafl í síbreytilegum heimi. Ég er einstaklega þakklát fyrir þátttöku starfsfólks og nemenda í mótun stefnunnar. Við setjum markið hátt til næstu ára og ég trúi því að þannig getum við stækkað veruleikann og haft áhrif til framtíðar.
– Kristín Eysteinsdóttir, rektor
Listaháskóli Íslands er hreyfiafl í síbreytilegum heimi.
Markmið I:Objective I
Að styrkja kjarna námsleiða ásamt því að innleiða aukinn sveigjanleika í námi og þverfagleika milli deilda. Þannig viljum við auka möguleika á fjölbreytilegri samsetningu náms fyrir leiðandi listamenn framtíðarinnar.
Markmið IIObjective II
Að vera í fararbroddi í símenntun og samfélagslegri umræðu um listir, efla samstarf og festa í sessi samstarfssamninga við hagaðila og menningarstofnanir.
Markmið IIIObjective III
Að efla rannsóknavirkni skólans með auknum stuðningi við rannsakendur, sveigjanlegra rannsóknarhlutfalli starfsfólks og fjölbreyttri miðlun rannsókna.
Nám í listum á að endurspegla fjölbreytileika samfélagsins.
Markmið I:Objective I
Að vera skóli fyrir öll og ryðja hindrunum um aðgengi úr vegi.
Markmið IIObjective II
Að skapa náms- og starfsumhverfi inngildingar og jafnræðis.
Markmið IIIObjective III
Að húsnæði og aðstaða Listaháskólans verði framúrskarandi svo nemendur okkar og starfsfólk geti blómstrað.
Skapandi hugsun er lykilforsenda framþróunar.
Markmið I:Objective I
Að vera eftirsóknarvert samfélag sem er leiðandi í námi og kennslu með áherslu á framsækni, ábyrgð og umhyggju.
Markmið IIObjective II
Að hljóta viðurkenningu til að hefja doktorsnám við skólann.
Markmið IIIObjective III
Að þróa námsframboð á meistarastigi í samtali við samfélag og atvinnulíf með nýsköpun að leiðarljósi.
Spurningar um þetta efni?
Hafðu samband við skrifstofu skólans og við komum fyrirspurninni til réttrar deildar eða sviðs.