Listaháskóli Íslands býður nýnemum að stíga inn í skapandi umhverfi þar sem hugmyndir fá að vaxa, hæfileikar þróast og tengsl myndast við fjölbreytt samfélag lista- og fræðafólks. Á þessari síðu finnur þú það helsta sem hjálpar þér að hefja ferðalagið.

Gott er að gefa sér tíma til að kynna sér efnið vel, svo þú getir tekið næsta skref í átt að listnámi við LHÍ af öryggi og innsæi.

Öryggi

Tilkynna um ósæmilega hegðun

Jafnræði og virðing skal ríkja í öllum samskiptum í Listaháskóla Íslands. Tjáningarfrelsi er virt og skoðanaskiptum er hagað á málefnalegan og ábyrgan hátt. Hvernig á að tilkynna einelti, áreitni eða ofbeldi, ferlið, trúnaður og hverjir taka við tilkynningum.

Er eitthvað óljóst?

Spurningar um lífið í skólanum?

Skrifstofa skólans og náms- og starfsráðgjöf svara fyrirspurnum nemenda.

ISIC Student Cards

ISIC – Alþjóðleg nemendaskírteini

Sem skráður nemandi við LHÍ getur þú nú fengið stafrænt ISIC skírteini á sérkjörum. Nýttu þér 40% afslátt og fáðu alþjóðlegt námsmannaskírteini sem veitir þér aðgang að fjölmörgum afsláttum og fríðindum, bæði heima og erlendis.