Vatn breytir um form í mismunandi aðstæðum án þess að missa efniseiginleika sína. Seigfljótandi er tilraun á óvaranlegri efnisformun. Aðferðafræði og tól eru hönnuð til að beygja staðlaðar stærðir af stálplötum án óafturkræfra áhrifa á styrk eða efniseiginleika stálplatanna. Verkefnið hverfist um að hanna með efninu og efniseiginleikum án þess að rýja styrk þess. Plöturnar eru beygðar á lægstu mörkum þess, þannig að efnið haldi formi með sem minnstri streitu án þess að skaða eða draga úr styrk. Aðferðarfræðin leyfir stálplötunum að halda sömu eiginleikum og áður svo efnið eigi enn möguleika að breytast í önnur form, svipandi til umbreytanlegra eiginleika vatns.
Water changes form under different conditions while retaining its material properties. Viscous is a material exploration of impermanence in material forming. The methodology and tool are designed for bending standardized steel sheets without compromising their strength. The project revolves around designing with the material properties, limitations and behaviour. Viscous achieves to create and hold a curved shape, with the least amount of strain without causing damage or reducing the qualities of the steel. This method permits the steel sheets to retain their original properties and be repurposed rather than irreversibly changed, mimicking the shape-shifting nature of water.
Myndir: Claudio Parada Nunes
Kjartan Tindur
Seigfljótandi / Viscous





