Listaháskólinn tekur virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi og leggur áherslu á að byggja upp faglegt samstarf við háskólastofnanir og fagumhverfi erlendis. Alþjóðaskrifstofan er opin mánudaga - fimmtudaga.

Skiptinám frá LHÍ

Að fara í skiptinám er einstakt tækifæri til að öðlast nýja sýn og kynnast menningu og samfélagi annarrar þjóðar. Nemendur sem fara í skiptinám fá tækifæri til að mynda ný tengsl sem kunna að vara lengi eða jafnvel alla ævi.

Skoða nánar →

Starfsnám

Nemendum Listaháskólans gefst kostur á að sækja um Erasmus+ styrk til þess að fara í starfsnám í Evrópu. Um er að ræða dvalarstyrk, en lágmarksdvalartími eru tveir mánuðir.

Skoða nánar →

Samstarfsskólar

Stefnumiðað samstarf Listaháskólans við erlenda samstarfssháskóla stuðlar að þróun náms, kennslu og rannsókna í alþjóðlegu samtali. Listaháskólinn býður upp á skiptinám við yfir hundrað samstarfssóla í gegnum alþjóðleg samstarfsnet líkt og Erasmus+ og Nordplus.

Skoða nánar →

Kennara- og starfsmannaskipti

Skólinn leggur áherslu á náið samstarf á breiðu fagsviði við tiltekna háskóla. Kennarar og starfsfólk LHÍ geta sótt um ferðastyrki til að sinna gestakennslu eða starfsþjálfun hjá samstarfsháskólum. Þátttaka í Erasmus+ og Nordplus gerir LHÍ einnig kleift að sækja um ferðastyrki fyrir sérfræðinga frá fagvettvangi til gestakennslu.

Skoða nánar →

Incoming exchange

Are you interested in doing exchange study at IUA? Each semester the IUA welcomes around 30 exchange students from partner institutions. Look here for further information for incoming exchange students.

Skoða nánar →

Bóka viðtalstíma

Vegna skiptináms og starfsnáms á erlendri grundu:

Edda Lára Kaaber
Verkefnastjóri
Smellið hér til að bóka viðtalstíma
eddalara@lhi.is

Fyrir skiptinema í LHÍ:

Marieke Jensen
Verkefnastjóri
marieke@lhi.is

Fyrir starfsmannaskipti & samstarfsskóla:

Björg Stefánsdóttir
Forstöðumaður Alþjóðaskrifstofu
bjorgstef@lhi.is

Alþjóðastefna

Alþjóðlegt samstarf er mikilvæg leið til þekkingarsköpunar, byggir upp traust og stuðlar að auknum skilningi á alþjóðasamfélaginu. Í gegnum alþjóðlegt samstarf í fjölmenningarlegu námssamfélagi leitast Listaháskólinn við að þjálfa nemendur í að taka ákvarðanir sem eru byggðar á staðreyndum fremur en fordómum. Alþjóðlegt samstarf háskóla er jafnframt mikilvægur liður í að efla gæði náms, kennslu og rannsókna.

Alþjóðastefna →

Alþjóðleg samstarfsnet

Aðildarsamtök og samstarfsnet

ELIA samtök listaháskóla í Evrópu
AEC samtök Evrópskra tónlistarháskóla
Cumulus alþjóðleg samtök hönnunarháskóla
EAAE samstarfsnet háskóla í Evrópu á sviði arkitektúrs

Listaháskólinn er þáttakandi í eftirfarandi Nordplus samstarfsnetum:

CIRRUS – hönnun
KUNO – myndlist
NORTEAS – sviðslistir
Nordic Baltic Academy of Architecture (NBAA) – arkitektúr
Nordplus Music – tónlist
ANMA – tónlist
ECA þverfaglegt samstarfsnet (áður EMD)
DAMA þverfaglegt samstarfsnet
EDDA – listkennsla (sjónlistir)

Alþjóðleg samstarfsverkefni

Stefnumiðað samstarf Listaháskólans við erlenda samstarfsháskóla stuðlar að þróun náms, kennslu og rannsókna í alþjóðlegu samtali. Skólinn leggur áherslu á náið samstarf á breiðu fagsviði við tiltekna háskóla. Í því felst þátttaka í verkefnum um þróun á námi og kennslu, alþjóðlegum rannsóknarverkefnum, samtal um gæðamál og bætta stjórnsýslu, gestakennsla og fjölbreyttar leiðir til nemendaskipta.

Alþjóðleg samstarfsverkefni →

Erasmus policy statement

The IUA institutional strategy 2019-2023 focuses on enhancing intercultural competences, social and global awareness of students and staff through mobility and internationalisation at home.

Students’ competences are developed through:

  • exchange or internships abroad,
  • participation in international projects or collaboration in the local community,
  • an international classroom where engagement between local and international students is encouraged,
  • inviting guest lecturers and artists from abroad,
  • a digital classroom in collaboration with partners abroad.

The IUA aims at supporting development of all its staff by strengthening their skills to work in a diverse and international setting.

This is done through:

  • staff exchanges: teaching, job shadowing and training abroad,
  • increased participation in international research and development projects,
  • supporting staff to attend courses and training events locally and abroad,
  • sharing of experiences and practices within the institution and partners abroad.

Through new opportunities, such as blended mobility and further development of digital collaboration, the IUA anticipates doubling the number of participants within the new period. This also allows the IUA to reach new groups of students that are not able to pursue long-term mobility abroad, making participation in international collaboration more inclusive.

Through active engagements in strategic partnerships the IUA seeks to improve the quality and relevance of higher education in line with the objectives of EU’s Agenda for Modernisation in Higher Education. The participation in such projects promotes innovation, development of approaches to learning and teaching, and quality enhancement in the curriculum and the study environment.

ERASMUS CHARTER FOR HIGHER EDUCATION 2021-2027

Styttri námsdvalir

Nemendur geta sótt um styrk fyrir styttri námsdvölum bæði í gegnum Erasmus+ og Nordplus.

Styttri námsdvalir →

1

Skref 1

Texti í vinnslu — þessi klausa var ekki varðveitt og þarf að skrifa.

2

Skref 2

Texti í vinnslu — þessi klausa var ekki varðveitt og þarf að skrifa.

3

Skref 3

Texti í vinnslu — þessi klausa var ekki varðveitt og þarf að skrifa.

Samstarfsskólar í Evrópu og víðar.

187 skólar · 31 land
24 valdir skólar af 187 í 31 landi — skiptinám í gegnum Erasmus+ og Nordplus.
Skoða alla samstarfsskóla →
Hafa samband

Spurningar um alþjóðasamstarf?

Alþjóðafulltrúi skólans veitir ráðgjöf um skiptinám, starfsnám og styrki.