Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Gæðamál

Decor overlay

Markmið gæðakerfisins er að efla gæði háskólastarfsins og tryggja að prófgráður og rannsóknir uppfylli alþjóðleg viðmið, og er kerfið þannig uppbyggt að styðji við gæðamenningu innan skólans alls. Uppistaða kerfisins er þríþætt; Stefna Listaháskóla Íslands 2024-2029, Rammaáætlun Gæðamat háskóla (e. Icelandic Agency for Quality Assurance) um eflingu gæða á sviði æðri menntunar á Íslandi 2024-2029 (e. Icelandic Quality Enhancement Framework – QEF3), og Kröfur og leiðbeiningar fyrir gæðatryggingu á sviði æðri menntunar í Evrópu (e. Standards and Guidelines for Quality Assurance in the European Higher Education Area – ESG 2015). Gæðastarf Listaháskólans er umbótamiðað, opið og gegnsætt, þar sem ábyrgð og skyldur eru skilgreind með skýrum hætti og samvinna sviða, deilda og starfseininga tryggð.

Skýrslur og niðurstöður innri úttekta

Ytri úttektir

  • Stofnunarúttekt LHÍ 2021 (QEF 2)

    QEF2: SER and IWR Reports
    Rammaáætlun um eflingu gæða í íslenskum háskólum er sameiginlegur gæðarammi sem á að styðja háskóla til að tryggja og efla gæði starfsemi sinnar.
    Áætlunin byggist á umbótamiðaðri nálgun þar sem háskólarnir bera sjálfir ábyrgð á gæðum, en ytra gæðamat styður við stöðugar umbætur með greiningu á styrkleikum, áskorunum og tækifærum til þróunar.
    Markmiðið er jafnframt að efla gagnsæi og skapa þekkingu um gæði í háskólastarfi, á grunni íslenskra aðstæðna og í samræmi við evrópsk viðmið um gæðamál í háskólum.
    Ferli stofnunarúttektar skiptist í þrennt. Fyrsti hluti er sjálfasmat stofnunarinnar sem lýkur með sjálfsmatsskýrslu (e. Self-Evaluation Report eða SER). Annar hluti er stofnunarheimsókn ytri úttektarnefndar sem kemur í kjölfar sjálfsmatsskýrslunnar. Þriðji og síðasti hluti er skýrsla úttektarnefndarinnar (e. Institution-Wide Review eða IWR).
    Báðar þessar skýrslur frá gæðahring 2 (QEF2) eru aðgengilegar hér.