Að fara í skiptinám er einstakt tækifæri til að öðlast nýja sýn og kynnast menningu og samfélagi annarrar þjóðar. Nemendur sem fara í skiptinám fá tækifæri til að mynda ný tengsl sem kunna að vara lengi eða jafnvel alla ævi.

Ljóst er að þeir sem velja þá leið að fara í skiptinám eru reynslunni ríkari þegar kemur að því að sækja um framhaldsnám eða önnur störf erlendis síðar á lífsleiðinni. Jafnframt eru gerðar síauknar kröfur um reynslu og þáttöku í alþjóðlegu samstarfi á evrópskum vinnumarkaði.

Nemendum Listaháskólans stendur til boða að sækja um skiptinám og fá það metið til eininga sem hluta af sínu námi. Nemendur í BA námi skulu hafa lokið minnst 60 einingum áður en skiptinám hefst en nemendur í MA námi minnst 30. Athugið að það er breytilegt eftir námsgrein hvort skiptinám sé í boði og eins á hvaða önn og/eða ári. Ráðfærið ykkur við ykkar fagstjóra ef þið hafið í huga að fara í skiptinám.

Skiptinám er metið til eininga sem hluti af prófgráðu nemanda við heimaskóla. Samkvæmt samningum Erasmus greiða skiptinemar ávallt skólagjöld heimaskóla en ekki gestaskóla.

Umsóknarfrestur til að sækja um skiptinám á vorönn er 15. september og fyrir skiptinám á haustönn / heilt námsár er 15. febrúar. Hægt er að sækja um í allt að þrjá skóla.

Listaháskóli Íslands er með samstarfssamninga við yfir 100 skóla á Norðurlöndunum og í Evrópu. Smelltu á hlekkinn hér fyrir neðan til að skoða hvaða skóla við erum með samninga við. Notaðu síurnar í leitarvélinni til að fá upp skóla eftir námsgrein, námsstigi og landi.

Samstarfsskólar →

  • Erasmus kóði LHÍIS REYKJAV06
  • Netfang eddalara@lhi.is
  • Bóka viðtalstíma
    Fáið almenna ráðgjöf og upplýsingar er varða skiptinám erlendis og starfsnám erlendis með því að smella hér.

Umsóknarform fyrir skiptinám má finna með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.

Ugla →

Leiðbeiningar um það hvernig nemendur útbúa rafrænan námssamning (Online Learning Agreement – OLA) má hlaða niður með því að smella hér fyrir neðan.

OLA Leiðbeiningar →

Hafa samband

Spurningar um þetta efni?

Hafðu samband við skrifstofu skólans og við komum fyrirspurninni til réttrar deildar eða sviðs.