Árlegt skrásetningargjald við Listaháskólann er 100.000,- kr. fyrir nemendur með ríkisfang innan EES, Færeyja, Grænlands og Sviss auk allra nemenda óháð ríkisfangi sem hófu nám við LHÍ haustið 2025 eða fyrr. From fall 2026 tuition fees will apply to applicants from a country outside of EEA, Faroe Islands, Greenland and Switzerland. Further information about tuition fees.
Skrásetningargjald
Árlegt skrásetningargjald við skólann er 100.000,- kr.
Tuition fees will apply for students from outside the EEA, Faroe Islands, Greenland and Switzerland beginning with enrolment in fall 2026. Further information.
Greiðsla skrásetningargjalds
Nýnemar með ríkisfang innan EES, Færeyja, Grænlands og Sviss, sem innritaðir eru til náms sem hefst á haustmisseri greiða skrásetningargjald, kr. 100.000,- í samskiptagátt skólans.
Eindagi skrásetningargjalds nýnema er mismunandi eftir deildum. Eftir eindaga fellur vilyrði um skólavist niður. Skrásetningargjaldið er óendurkræft.
Umsóknargjald
Umsækjendur greiða 5000,-kr umsóknargjald þegar umsókn er send inn.
Greitt er fyrir hverja umsókn. Ef umsóknir eru fleiri en ein, er greitt umsóknargjald fyrir hverja þeirra.
Umsóknargjaldið dregst ekki frá skráningargjaldi, jafnvel þótt umsókn sé samþykkt.
Umsóknargjaldið er óendurkræft.
Námshlé
Nemendur í námsleyfi greiða fullt skrásetningargjald.
Heimild til lækkunar skrásetningargjalds
Skrásetningargjald fyrir eina önn er 65.000,- kr.
Nemendur með örorkuskírteini fá 25% afslátt af fullu skrásetningargjaldi og greiða 75.000,- kr.
Til að sækja um afslátt af skrásetningargjaldi er haft samband við móttöku í Stakkahlíð 1, 105 Reykjavík.
Framvísa þarf örorkuskírteini eða úrskurði um örorku.
Annar kostnaður
Nemendur skulu ávallt gera ráð fyrir öðrum kostnaði vegna námsgagna, s.s. bókakaupum, leyfum fyrir forrit, efniskostnaði og prentkostnaði.
Eindagi skrásetningargjalds við LHÍ fyrir aðra en nýnema
- 20. júní fyrir háskólanám sem hefst að hausti.
- 20. desember fyrir háskólanám sem hefst að vori.
Spurningar um þetta efni?
Hafðu samband við skrifstofu skólans og við komum fyrirspurninni til réttrar deildar eða sviðs.