Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Aðgengi

Decor overlay

Hér neðan eru upplýsingar fyrir gesti um aðgengi og innan skólans.  

Strætó 

Stakkahlíð 

Strætó nr. 11 stoppar á stöðvunum “Háteigskirkja” og “Háteigsskóli“. Frá báðum stöðvum eru um 250m að húsnæði Listaháskólans við Stakkahlíð.  

Stöðin “Hlíðar” á Miklubraut er í um 400m fjarlægð og þar stoppa vagnar nr. 1, 3, 6, 13, 55 og 57. 

Laugarnes 

Strætó nr. 12 stoppar á stöðvunum “Laugalækur” og “LHÍ Laugarnesi”. Frá báðum stöðvum eru um 150m að húsnæði skólans í Laugarnesi.  

Strætó nr. 16 stoppar á stöðinni “Kirkjusandur” sem er í um 500m fjarlægð.  

Unnið er að gerð göngustígs frá Laugarnesvegi að dyrum byggingarinnar.  

Skipholt 

Stöðin “Hátún” er í um 500m fjarlægð frá húsnæði skólans í Skipholti. Þar stoppa vagnar nr. 2, 5, 14, 15 og 17.  

Stöðin “Háteigskirkja” er í um 400m fjarlægð. Þar stoppar vagn nr. 12. Athugið að á þessari leið er stigi, malarstígur og gengið um stór bílastæði.  

Þórunnartún 

Húsnæði skólans í Þórunnartúni 2 er mitt á milli stöðvanna  

Stöðvarnar “Höfðatorg” og “Rúgbrauðsgerðin” eru í um 150m fjarlægð frá húsnæði skólans í Þórunnartúni 2. Þar stoppa vagnar nr. 2, 4, 5, 12, 14, 15, 16 og 17.  

Nánari upplýsingar um ferðir strætó er að finna HÉR .

Bíla- og hjólastæði 

Stakkahlíð 

Í húsnæði skólans við Stakkahlíð 1 eru tveir inngangar.  

Inngangur við Stakkahlíð – Aðalinngangur: 

  • Eitt bílastæði er merkt fyrir fólk með hreyfihamlanir. 
  • Við innganginn eru nokkur almenn bílastæði. 

Inngangur við Háteigsveg: 

  • 2 stæði eru merkt fyrir fólk með hreyfihamlanir.  
  • Næg almenn bílastæði. 
  • 3 stæði við hleðslustöðvar.  

Við innganginn eru stæði fyrir hjól.  

 Laugarnes 

Í húsnæði skólans í Laugarnesi eru þrír inngangar.  

Aðalinngangur á vesturhlið: 

  • Við innanginn eru 2 bílastæði merkt fyrir fólk með hreyfihamlanir.  
  • Fjöldi almennra bílastæða er við innganginn.  
  • Við innganginn eru stæði fyrir hjól 

 Inngangur 2 á vesturhlið:  

  • Fjöldi almennra bílastæða er við innganginn. 
  • Við innganginn eru stæði fyrir hjól.  

 Inngangur á austurhlið: 

  • Við innganginn er nokkuð stórt malarplan með fjölda almennra bílastæða.  
  • Þar er eitt hellulagt stæði merkt fyrir fólk með hreyfihamlanir.  

 Skipholt 

Engin almenn bílastæði eru við húsnæði skólans í Skipholti 31.  

  • Bílastæði merkt fyrir fólk með hreyfihamlanir er til staðar á aðgangsstýrðu bílastæði við inngang að tónleikasalnum. Aðkoma inn á bílastæðið er frá Brautarholti.  
  • Á meðan opnum viðburðum á vegum skólans stendur er hliðið inn á bílastæðið opið.  
  • Gestir sem eiga bókaða fundi með starfsfólki og þurfa aðgang að stæðinu eru beðin að hafa samband við þann sem boðar til fundarins.  
  • Hjólagrind er við neðri inngang við tónleikasalinn.  

Þórunnartún 

Við húsnæði skólans í Þórunnartúni 2 eru hvorki bíla- né hjólastæði.  

Skynsegin aðgengi 

Lýsing og hljóðvist eru almennt ekki góð í húsnæði skólans m.t.t. skynsegin fólks. Mikið er um flúor ljós í lofti og engin hljóðdempun á göngum. Gestir eru því hvattir til þess að koma með sinn eigin hljóð- og ljósdempandi búnað.  

Næðisrými eru í undirbúningi í húsnæði skólans í Stakkahlíð og Laugarnesi.  

Aðgengi fyrir blint og sjónskert fólk og stafnotendur 

Húsnæði skólans í Laugarnesi og Þórunnartúni 2 er því miður ekki aðgengilegt fyrir blint og sjónskert fólk og stafnotendur án aðstoðar. 

Húsnæði skólans í Skipholti 31 er aðgengilegt að hluta til.  

Þau sem eru að skipuleggja heimsóknir í þessar byggingar eru vinsamlega beðin að hafa samband við skólann í síma 545 2200 eða á netfangið lhi@lhi.is. 

 Í húsnæði skólans í Stakkahlíð 1 eru leiðarlínur og viðvörunarkassar á gólfi jarðhæðar.  

Á jarðhæð eru m.a. móttaka skólans og fyrirlestrarsalirnir Bratti og Skriða.  

Til þess að koma í móttökuna er gengið inn um inngang frá Stakkahlíð. Þar eru tröppur og sjálfvirkar dyr sem opnast út. 

Til þess að koma í fyrirlestrarsalina er gengið inn um inngang frá Háteigsvegi. Þar eru sjálfvirkar dyr inn í anddyri og opnast þær út. Inn úr anddyrinu eru aðrar sjálfvirkar dyr sem opnast í sömu átt. Engar leiðarlínur eru í anddyrinu og þar er stór og gróf motta.  

Aðgengi fyrir heyrnalaust og döff fólk 

  • Almennt býður skólinn ekki upp á táknmáls- eða rittúlkun á viðburðum skólans.  
  • Gestir sem vilja koma með túlka með sér eru beðnir að hafa samband tímanlega við skólann í gegnum netfangið lhi @lhi.is svo hægt sé að tryggja aðstöðu og lýsingu fyrir túlka.  

Snyrtingar 

Stakkahlíð 

Í Stakkahlíð eru aðgengilegar snyrtingar fyrir öll. Byggingin skiptist í Hamar, Enni, Múla og Klett en eins og er er skólinn með starfsemi í Hamri og Enni.
Hamar er austasti hluti byggingarinnar og er gengið inn í hann frá Háteigsvegi.

Í Hamri eru aðgengilegar snyrtingar fyrir fólk með hreyfihamlanir á öllum hæðum og eru þær snyrtingar einnig merktar sem kynhlutlausar. Snyrtingar merktar kvk og kk eru einnig á öllum hæðum. Bókasafn skólans og fyrirlestrarsalir eru í Hamri.

Enni liggur til vesturs frá Hamri. Móttaka skólans er í vesturenda Ennis, við inngang frá Stakkahlið. Á fyrstu hæð eru einnig matsala, námsráðgjöf og alþjóðaskrifstofa.

Í Enni eru snyrtingar á fyrstu og þriðju hæð en ekki á annarri hæð. Lyfta er milli hæða. Snyrtingarnar eru allar kynhlutlausar. Snyrtingarnar eru ekki aðgengileg fyrir fólk með hreyfihamlanir en stutt er að fara í Hamar.

Laugarnes 

Í Laugarnesi eru allar snyrtingar kynhlutlausar.  Snyrtingar fyrir fólk með hreyfihamlanir eru þrjár:  

  • Á fyrstu hæð við aðalinngang. Þar er hurðaopnari.  
  • Við hlið lyftu á annarri hæð.
  • Við enda MA svæðis á annarri hæð.  

Handþurrkur og speglar á þessum snyrtingum eru staðsett ofarlega á veggjum.  

Skipholt 

Í Skipholti eru allar snyrtingar kynhlutlausar.  

Starfsemi skólans fer fram á þremur hæðum, jarðhæð, 3ju og 4ju hæð. Snyrtingar fyrir fólk með hreyfihamlanir eru á öllum hæðum en misaðgengileg. Á hæðum 3 og 4 eru þröskuldar sem gætu verið hindrun fyrir einhverja hjólastóla og þungar hurðar. Á jarðhæð eru engir þröskuldar á milli tónleikasalarins og aðgengilegrar snyrtingar en þar er þung hurð sem er ekki með hurðaopnara.

Þórunnartún 

Í Þórunnartúni eru snyrtingar kynhlutlausar. 

Engar snyrtingar eru vel aðgengileg fyrir fólk með hreyfihamlanir. Þung hurð er inn á salernisganginn og er hún ekki með hurðaopnara. Ein snyrtingin er ágætlega rúmgóð og fólk sem notar göngugrind eða nettan hjólastól getur notað hana, með aðstoð.  

Aðgengi fyrir fólk með hreyfihamlanir 

Í vinnslu