Halldór Hansen átti mikið og gott tónlistarsafn sem hann gaf skólanum þegar hann arfleiddi eigur sínar og er efnið í umsjón bókasafns LHÍ.

Bækur og tímarit

Um 1000 eintök af bókum og tímaritum úr safni Halldórs eru skráð í bókasafnskerfið Gegni og eru leitarbær á leitir.is. Flestar bækurnar eru ævisögur tónlistarmanna (ópersöngvara og söngkvenna) og fagbækur um tónlist. Þær eru allar til útláns.

Geisladiskar

Halldór átti á annað þúsund geisladiska sem allir hafa verið skráðir á leitir.is.

Myndbönd

Mikið safn óperumyndbanda fylgdi búi Halldórs og eru þau að mestu óskráð. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær eða hvernig skráningu verður háttað.

Hljómplötur

Stærsti hluti tónlistarsafns Halldórs eru hljómplötur en hann átti um tíu þúsund plötur sem eru því miður óaðgengilegar eins og er.
Skrá yfir hljómplötusafn Halldórs sem í eru 6334 titlar.

Hafa samband

Spurningar um þetta efni?

Hafðu samband við skrifstofu skólans og við komum fyrirspurninni til réttrar deildar eða sviðs.