Dagsetning
8. október 2026 – 11. október 2026
Staðsetning
Nafli - Laugarnes
Deild
Myndlistardeild

BA3 einkasýning í Naflanum
Opnun 8. október 17:00 – 19:00
Einnig opið 9. október 16:00-18:00 – 10. & 11. október kl. 12:00-16:00.
——

það og þú, kalt og heitt.

eitt stendur óhreyft og sterkt. hið andstæða er milt, og sýnir það. það milda aðlagar sig þar sem það er ekki velkomið. mildin gefur af sér og hlúir að. en kuldinn, hann tekur.

ójafnvægi og skekkja. samstilling á sér ekki stað þeirra á milli. þar sem eitt tekur yfir annað, er alltaf einn sem tapar mætti.

Efnið er leiðarvísir, sem og sögumaður. Það geymir tilfinningar, tekur við snertingu og ljómar af kunnugleika. Hera Katrín Karlsdóttir vinnur með ferlið, tekur efni úr sínum náttúrulega ham og kryfur það til mergjar. Umbreytingarferlið einkennist af óvissu, þar sem efnin fara sínar eigin óvæntu leiðir, blása út, hrörna og óhlýðnast. Spennan á heima á ókunnugu svæði, þar sem erfitt er að bera fullkomlega kennsl á það sem gerðist. Efnið sem stendur eftir býr yfir frásögn og samtali á tungumáli skynvitundarinnar.
——

Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.
Nánari upplýsingar um röðina má finna HÉR.

Facebook viðburður