+ Bæta við
BA3 einkasýning í Naflanum
Opnun 19. nóvember 17:00 – 19:00
Einnig opið 21. nóvember 14:00 – 18:00
——
Vaxið í rýminu á sér marglaga sögu sem getur teygt sig langt aftur í tímann. Það er endurunnið og gefur vitnisburð um einkalíf, hátíðir og hversdagsleika fólks áður en þeim var fargað, til dæmis sem kerti í fermingarveislum og jarðarförum. Þegar vaxið er brætt og því steypt í nýtt form, mætast allar þessar ólíku sögur og minningar í einum efnismassa. Sú saga heldur áfram að þróast, því þegar líftíma eins verks lýkur er vaxið brætt niður enn á ný til að mynda grunninn að því næsta. Sérhvert listaverk verður því að sögulegu framhaldi af því fyrra.
Loginn breytir efnismassanum og hann tekur sífellt á sig nýtt form. Umbreyting er vaxi eðlislæg og það verður þannig að sinni eigin lífveru. Hún flöktir í takt við tímann og dregur áhorfandann með sér inn í forgengileikann. Í hvert sinn sem litið er á verkið verður áhorfandinn vitni að augnabliki sem var að hverfa.
Allt hefur áhrif á allt.
Hjaltalín vinnur með efni sem aðrir vilja ekki, aðallega vax.
Viðvörun: Ójafnt gólf
——
Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.
Nánari upplýsingar um röðina má finna HÉR.