BA3 einkasýning í Huldulandi
Opnun 15. október 17:00 – 19:00
Einnig opið 16. október kl. 16:00-18:00 & 18. október kl. 15:00-18:00.
——
Stundum þarf að fara inn á við, horfast í augu við Píkuna og eiga samtal um hvað gæti þurft að breytast/lagast til að stuðla að hamingju og heilbrigði beggja. Stundum eru til lausnir og stundum ekki. Lausnin gæti verið skamms tíma en stundum liggur vandamálið dýpra.
Lyfin fá sjaldan að sjást, eru hlaðin skömm en um leið eru þau oft nauðsynleg fyrir heilbrigði líkamans. Í kirkjunni komast lyfin í dýrðlingatölu fyrir góðverk sín og samskiptin sem þau tóku að sér að eiga við Píkuna. Nú gefst tækifæri til þess að sjá þau í nýju ljósi.
Hofið er líkaminn. Hofið biður um vel ígrunduð samskipti við Píkuna. Hofið nær þér niður á jörðina.
Erla Rut Pétursdóttir stundar rannsóknir á kvenlíkamanum, starfsemi hans og sambandi hugar og líkama. Hún notar þann efnivið og þá miðla sem henta konseftinu hverju sinni, svo sem fundið efni, handverk, ljósmyndun, skúlptúr, gjörning og innsetningu.
——
Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.
Nánari upplýsingar um röðina má finna HÉR.