Dagsetning
16. september 2026
Tími
11:45
Staðsetning
Dynjandi - Skipholt 31
Deild
Tónlistardeild

Opinn tími í Dynjanda: Gínesk tónlist, trommuleikur og söngur

Miðvikudaginn 16. september kl. 11:45 verður opinn tími í Dynjanda að loknum fyrsta hluta námskeiðsins Leading and Guiding, sem er hluti af NAIP-meistaranáminu við tónlistardeild Listaháskóla Íslands.

Viðfangsefni námskeiðsins fyrstu vikurnar hefur verið tónlist frá Gíneu í Vestur-Afríku. Um þessar mundir er hér á landi hópur tónlistarfólks og dansara úr Ballet Merveilles de Guinée, undir stjórn Mamady Sano. Heimsóknin er hluti af samstarfsverkefni hópsins og Listaháskólans sem hefur staðið yfir í þrjú ár.

Á námskeiðinu hafa nemendur tekið þátt í vinnustofum í gíneskri tónlist, trommuleik og söng. Á miðvikudaginn mun Leading and Guiding bekkurinn sýna afrakstur vinnunnar í opnum tíma í Dynjanda.

Öll hjartanlega velkomin