Dagsetning
19. september 2026
Tími
13:00–18:00
Staðsetning
LHÍ Laugarnesi
Deild
Sviðslistadeild
Praxis, sviðslistaþing Listaháskóla Íslands, verður haldið í þriðja sinn laugardaginn 19. september 2026.

Þingið er vettvangur fyrir listrænar tilraunir, þekkingarsköpun og samtal milli fagvettvangsins og háskólasamfélagsins. Um leið er þingið staður fyrir sviðslistasenuna til að koma saman og deila aðferðum og rannsóknum, og hugsa saman til framtíðar.

Þema Praxis 2026 er „ Leikarinn og hlutverkið” þar sem áhersla er á ólíkar leiktúlkunaraðferðir og starf leikarans innan sviðslista.

Dagskrá:

13:00 – 13:30
– Opnun og kaffispjall (léttar veitingar)

13:30 – 15:00
– Sol Garre – Aðalfyrirlesari: What the body knows: Exploring the relationship of an actor with what she does

15:15 – 16:00
– Björn Thors: Einn á sviðinu

16:15 – 17:00
– Halldóra Geirharðsdóttir: Hugleiðingar um endurtekningu og endurfæðingu – list leikarans

17:15 – 18:00
– Agnar Jón Egilsson stýrir pallborðs umræðum. Þátttakendur: Ilmur Kristjánsdóttir, Oddur Júlíusson, Sólveig Arnarsdóttir og Stefán Jónsson.

Frekari upplýsingar um hvern fyrirlestur má finna hér: https://www.lhi.is/rannsoknir/praxis/

 

Praxis er haldið í stóra Black boxi Sviðslistadeildar í húsnæði Listaháskóla Íslands að Laugarnesvegi 91, 105 Reykjavík. Gengið er inn fyrir ofan hús, frá malar bílastæðinu.
Ókeypis aðgangur. Öll hjartanlega velkomin. SKRÁNING HÉR.

Facebook viðburður