Fyrirlestrarröðin Samhengi býður velkominn Pétur Jónasson föstudaginn 23. október með fyrirlesturinn Athygli, minnisferlar og flókið tónefni. Þar segir Pétur frá doktorsrannsóknum sínum, sem snúa að því hvernig atvinnutónlistarfólk beitir sjónrænni athygli og sjónrænu vinnsluminni á flókið tónefni.
Viðburðurinn er í Dynjanda, sal Tónlistardeildar, og er öllum opinn.
//
The lecture series Samhengi welcomes Pétur Jónasson on Friday, October 23rd, with the lecture Attention, Memory Processes, and Complex Musical Material. Pétur will discuss his doctoral research, which focuses on expert musicians’ employment of visual attention and visual working memory while engaging with complex musical material.
The event takes place in Dynjandi, the Music Department’s hall, and is open to all.
Pétur Jónasson
Pétur Jónasson nam klassískan gítarleik á Íslandi, Mexíkó og á Spáni. Hann hlaut Sonning-verðlaunin dönsku fyrir unga norræna einleikara og var í kjölfarið fyrsti íslenski einleikarinn sem tilnefndur var til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs. Hann hefur komið fram sem einleikari á öllum Norðurlöndunum, Bretlandi, Evrópu, Norður-Ameríku, Eyjaálfu og í Austurlöndum fjær og hefur frá 2016 verið fastameðlimur nútímatónlistarhópsins Riot Ensemble í London en hljómsveitinni voru veitt hin virtu Siemens verðlaun árið 2021. Pétur lauk doktorsnámi við rannsóknamiðstöð Royal College of Music og Imperial College í London (Centre for Performance Science) árið 2025 og snerust rannsóknir hans um áhrif flækni (complexity) í nótnaskrift á sjónræna athygli og sjónrænt vinnsluminni atvinnutónlistarfólks.
www.peturjonasson.com
//
Pétur Jónasson studied classical guitar In Iceland, Mexico and Spain. He received the Sonning Award for Young Nordic Musicians in Copenhagen and later became the first Icelandic soloist to be nominated for the Music Prize of the Nordic Council. He has performed as a soloist in all the Nordic countries, Great Britain, Continental Europe, North America, Australasia and the Far East and is currently principal artist for the Siemens-prize winning group Riot Ensemble in London. Pétur holds a PhD degree from the Royal College of Music and Imperial College London’s Centre for Performance Science where his research focused on expert musicians’ employment of visual attention and visual working memory while engaging with complex musical scores.
www.peturjonasson.com