Dagsetning
15. október 2026 – 18. október 2026
Staðsetning
Kubbur - Laugarnes
Deild
Myndlistardeild

BA3 einkasýning í Kubbnum
Opnun 15. október 17:00 – 19:00
Einnig opið 16. október kl. 16:00-18:00 & 17.-18. október kl. 15:00-18:00.
——

Verk Noru eru frásagnarkennd og kallast á við drauma, ævintýri, og sögur. Heimur sem virðist kunnuglegur við fyrstu sýn umbreytist í eitthvað furðulegt eða jafnvel óhugnanlegt. Litir og tákn ýta undir dulúð eða drunga sem leynist undir yfirborðinu. Líkamar og verur spila saman við lifandi umhverfið sem þau eru stödd í.

Nora notar mismunandi miðla til að kanna þessi viðfangsefni og nýlega hefur hún tekið upp freskugerð.
——

Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.
Nánari upplýsingar um röðina má finna HÉR.

Facebook viðburður