+ Bæta við
BA3 einkasýning í Kubbnum
Opnun 19. nóvember 17:00 – 19:00
Einnig opið 21. nóvember 17:00 – 19:00
——
Fullvaxta folald með silfurhóf, veit hvert það stefnir, fer í skóla, tekur bílpróf, stundar líkamsrækt, finnur sér maka, kaupir sér íbúð, eignast bíl, eignast börn, giftir sig. Líður samt alltaf einsog það sé á eftir, upplifir stöðuga pressu að gera einsog hinir, veit ekki að það er engin ein skráð leið til þess að lifa. Það er svo mikil pressa og samfélagslegur þrýstingur, sem það finnur alltaf fyrir. Stundum líður því eins og það þekki ekki sjálft sig og viti ekki hvað það er að gera. Það er ein mannlegasta tilfinning sem fyrirfinnst. Því á ekki að fylgja skömm því við erum öll bara folöld sem uxu.
Listsköpun Örnu Hlínar Aradóttur sprettur af djúpri hrifningu á list sem á rætur sínar í einhverju innra og ósjálfráðu. Hún skapar út frá innri þörf, þar sem tilfinningar og hvatir fá að leiða ferlið. Þessar hvatir geta byggst upp hægt og hljóðlega yfir nokkra daga eða magnast yfir mánuði og jafnvel ár, þar til þær eru tilbúnar að taka á sig efnislega mynd. Það er í þessari úrvinnslu sem verk hennar verða að ímynduðum heimum, sögum eða sviðsmyndum. Að miðla þessum heimi til annarra er mikilvægur hluti af listsköpun hennar.
//
Arna Hlín Aradóttir’s practise is driven by a deep fascination with art that feels rooted in something internal and instinctive. She creates from a place of urgency, led by emotional impulses that build over time. These impulses can grow quietly over days, or intensify over months or years, until they are ready to materialize. It is in this release that her work takes shape of imagined worlds, stories or scenarios. Sharing this world is an important part of her practice.
——
Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.
Nánari upplýsingar um röðina má finna HÉR.