Björn Heimir Önundarson
Einkasýning í Naflanum
Opnun 24. september 17:00 – 19:00
Einnig opið 25.09.2026 (kl. 16:00-18:00) & 26.09.2026 (kl. 13:00-17:00)
——
Frumhvötin til aðgerðar áður en hún er hlekkjuð í fjötra rökhyggjunnar er eins og dans á jarðsprengjusvæði. Málverkið verður að farvegi fyrir hráan og ótaminn kraft þar sem gluggi opnast fyrir hið óvænta, þar sem allt er á stöðugri hreyfingu án nokkurs eftirlits.
Björn Heimir Önundarson notast við frásögnina í verkum sínum, en aðallega sem efni sem hann síðan snýr upp á, bjagar og brýtur niður í öreindir. Hann sækir innblástur sinn m.a. til listamanna á borð við Robert Crumb, Philip Guston og Georg Baselitz.
——
Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.
Nánari upplýsingar um einkasýningaröðina má finna HÉR.