Dagsetning
1. desember 2026
Tími
16:00–18:00
Staðsetning
Havarí, Faxafeni 12
Deild
Arkitektúrdeild
Borgarrýni // Urban lab – SKEIFAN 2050
+ Bæta við

B A.arch 2. ár í Havarí
Opnun 1. desember 16:00 – 18:00
——

SKEIFAN 2050

Hvernig getur borgarhönnun umbreytt Skeifunni í lifandi, sjálfbært og aðgengilegt hverfi fyrir alla?

 

Nemendur á öðru ári í arkitektúr við Listaháskóla Íslands sýna í Havarí afrakstur námskeiðsins Borgarrýni. Í haust hafa þau rannsakað og greint Skeifuna frá ólíkum sjónarhornum, mótað sameiginlega stefnuyfirlýsingu (manifestó) fyrir svæðið og þróað hugmyndir um hvernig Skeifan gæti orðið að betra og mannvænna borgarhverfi árið 2050.

Í námskeiðinu er sjónum beint að því hvernig borgir verða til, þróast og taka breytingum. Borgir eru flókin og lifandi kerfi þar sem samfélagslegir, efnahagslegir og menningarlegir þættir fléttast saman og móta hið byggða umhverfi. Markmið námskeiðsins er að efla skilning nemenda á margbreytileika borgarinnar, þjálfa þau í að greina ólíka mælikvarða hennar og hvetja til gagnrýninnar og skapandi hugsunar um framtíð borgarumhverfisins.

 

Skeifan er rótgróið atvinnu- og verslunarsvæði í hjarta Reykjavíkur, þar sem fjölbreytt starfsemi dregur að sér fjölda fólks á hverjum degi. Þrátt fyrir þessa miklu virkni hefur skipulag svæðisins að stórum hluta mótast af þörfum bílaumferðar, fremur en fólksins sem þar starfar og dvelur. Almenningsrými eru fá og tengingar fyrir gangandi og hjólandi takmarkaðar. Í þessum áskorunum felast jafnframt fjölmörg tækifæri til umbreytinga.

Með verkefninu Skeifan 2050 velta nemendur fyrir sér hvernig byggja megi á sérkennum og sögu svæðisins og þróa það áfram í átt að fjölbreyttara, sjálfbærara og mannvænna borgarhverfi.

 

 

Nemendur á öðru í arkitektúr við Listaháskóla Íslands, veturinn 2026-2027:

Elín Anna Óladóttir

Elsa Paul Soler

Emanuele Donadel

Emilía Arnarsdóttir

Finnbogi Óskar Magnússon

Flóki Hrafn Sigurðsson

Gylfi Maron Halldórsson

Hanna Lára Sigþórsdóttir

Ísabella Liv Arnarsdóttir

Karen Ósk Magnúsdóttir

Libor Adamcik

Maelys Emma Castillo

María Bjarkar Jónsdóttir

Saule Viktoría Tyscenko

Sigurgeir Bjarni Theódórsson

Urður Ýr Þorsteinsdóttir

Þórdís Daðadóttir

 

Kennarar: 

Aðalheiður Atladóttir, arkitekt FAÍ, dósent

Helgi Steinar Helgason, arkitekt FAÍ, stundakennari

 

Facebook viðburður