Dagsetning
12. nóvember 2026 – 15. nóvember 2026
Staðsetning
Hulduland - Laugarnes
Deild
Myndlistardeild
Leiðarstjarna // Ísak Sævarsson
+ Bæta við

BA3 einkasýning í Huldulandi
Opnun 12. nóvember 17:00 – 19:00
Einnig opið 13. nóvember 16:00 – 18:00 & 14. – 15. nóvember 15:00 – 18:00
——

Ég veit eina stjörnu … en sama hvað ég reyni að nálgast hana virðist hún rétt utan seilingar.

Hún hefur gert mig meðvitaðan um tómarúmið í brjósti mér, ég hugsa að hún gæti fyllt fullkomlega upp í það.

Hverju ert þú tilbúinn til að fórna fyrir þína eigin stjörnu?

—

Leiðarstjarna er stop-motion hreyfimynd eftir Ísak Sævarsson með handgerðum brúðum, leikmynd og leikmunum eftir hann. Tónlistin er eftir Atla Arnarsson.

—

Ísak hefur ávallt sýnt handverki mikið dálæti og vinnur með ull, málma, leir, gler og önnur efni og notar ólíka miðla eins og teikningar, skúlptúr, innsetningar, dans, myndbönd, gjörninga – og nú “stop-motion” hreyfimyndagerð. Í verkum hans má oft finna ólík eða mótsagnakennd element eins og mýkt og hörku, ljós og myrkur, fegurð og ljótleika og og andstæðurnar sem skapast þar á milli.

——

Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.

Nánari upplýsingar um röðina má finna HÉR.

Facebook viðburður