Fyrirlestrarröðin Samhengi býður Pál Ragnar Pálsson, gítarleikara og tónskáld, og Tui Hirv, söngkonu og tónlistarfræðing, velkomin föstudaginn 13. nóvember með erindið Sagan bak við lögin. Þar segja þau frá Layers, plötu sinni með trúarlegum þjóðlögum frá Eistlandi, Norðurlöndum og Bretlandi. Þau varpa ljósi á rannsóknina að baki plötunni og hvernig þau nálguðust efnið og gerðu það að sínu.
Viðburðurinn er í Skriðu, Stakkahlíð 1 og er öllum opinn.
//
The lecture series Samhengi welcomes guitarist and composer Páll Ragnar Pálsson and singer and musicologist Tui Hirv on Friday, November 13th, with the lecture The Story Behind the Songs. They will talk about Layers, their album of sacred folk songs from Estonia, the Nordic countries and Britain, and shed light on the research behind it: how they approached the material and made it their own.
The event takes place in Skriða, Stakkahlíð 1 and is open to all.
Páll Ragnar Pálsson & Tui Hirv
Páll Ragnar Pálsson, gítarleikari og tónskáld, og Tui Hirv, söngkona og tónlistarfræðingur, ólust upp í sitthvorum heiminum, hann í íslensku rokksenunni með öllu því frelsi og leikgleði sem henni fylgdi, og hún í strang-akademísku skólakerfi Eistlands og kórmenningu. Leiðir þeirra lágu saman í tónlistarakademíunni í Tallinn og hafa síðan þá unnið saman að listsköpun, þar sem Tui hefur flutt tónverk Páls bæði hér og erlendis.
Páll Ragnar og Tui vinna einnig saman sem dúó þar sem þau flytja ýmist dægurlög, trúarleg – eða þjóðlög. Ólíkur bakgrunnur þeirra og nálgun á tónlistina skapar nýjan hljóðheim.