Dagsetning
5. desember 2026
Tími
12:00–17:00
Staðsetning
Torga, Stakkahlíð 1
Deild
Allar deildir
Jólamarkaður LHÍ
+ Bæta við
Settu eitthvað óvænt, skapandi og einstakt í jólapakkann í ár!

Öll velkomin á jólamarkað LHÍ.
Laugardaginn 5. desember fyllist Torga í Stakkahlíð 1 af fjölbreyttri hönnun, handverki og skapandi verkum eftir nemendur og starfsfólk LHÍ.
Á markaðnum gefst frábært tækifæri til að finna einstakar og persónulegar jólagjafir og kynna sér listsköpun nemenda og starfsfólks Listaháskóla Íslands.
Við hvetjum öll til að líta við, finna eitthvað fallegt og njóta í aðventu stemningu.
Hvenær: laugardaginn 5. desember, kl. 12:00–17:00
Hvar: Torga, Stakkahlíð 1