Að skynja heiminn
Hugarflug, fimmtánda árlega ráðstefna Listaháskóla Íslands, er vettvangur fyrir opna, faglega og gagnrýna umræðu um listir, hönnun, arkitektúr og tengd svið. Hugarflug 2026 verður haldin dagana 9.-11. september í Reykjavík. Þema ráðstefnunnar í ár er heimur skynjunar.
Hvernig tengjumst við eigin skynjun og heiminum í kringum okkur? Í dag er auðvelt að verða aftengd, ekki aðeins frá umhverfinu heldur líka frá fólki sem upplifir heiminn á annan hátt en við sjálf. Með því að veita skynjun okkar athygli, hægja á og skapa rými fyrir fjölbreytta upplifun, opnast nýjar leiðir til þekkingarsköpunar og dýpri tengsla við heiminn. Rannsóknir í listum eru vettvangur til að kanna þessa fjölbreytni, spyrja gagnrýninna spurninga og þróa aðferðir sem leiða til nýrrar þekkingar og sjónarhorna.
Listir, hönnun og arkitektúr minna okkur á að skynjun er aldrei einsleit; hún er margbreytileg, mótast af samhengi og hefur áhrif á samskipti okkar.
Hugarflug 2026 óskar eftir erindum um þema ráðstefnunnar af öllum sviðum lista, hönnunar og arkitektúrs og tengdra fræða.