Dagsetning
27. nóvember 2026
Tími
12:15–13:00
Staðsetning
Dynjandi - Skipholt 31
Deild
Tónlistardeild
Samhengi Arnar Eggert Thoroddsen
+ Bæta við

Fyrirlestrarröðin Samhengi býður Dr. Arnar Eggert Thoroddsen, fagstjóri fræða við tónlistardeild LHÍ, velkominn föstudaginn 27. nóvember með erindið Íslenska dægurtónlistarsamfélagið 1950 – 2020: Félags- og sagnfræðileg nálgun.

Erindið fjallar um bók höfundar, Icelandic Pop: Then, Today, Tomorrow, Next week, sem út kom síðasta haust. Efni hennar byggir m.a. á doktorsritgerð Arnars sem er úttekt á íslensku tónlistarsamfélagi út frá samfélagsfræðilegum kenningum. Í bókinni er saga íslenskrar dægurtónlistar frá upphafi rokkbylgjunnar jafnframt rakin á sagnfræðilega vegu en tólum félagsfræðanna beitt um leið. Niðurstöður sýndu að Ísland skipar nokkuð einstakan sess þegar horft er til dægurtónlistarmenningar annarra ríkja. Of lítið til að vera raunsambærilegt við milljónaríki en um leið nægilega stórt til að bera ólík tónlistarsamfélög og -geira (djass, tilraunatónlist, hipphopp o.s.frv). Sú staðreynd að Ísland er örsamfélag eða smáríki hefur myndað ákveðið „þorpseinkenni“ sem felur m.a. í sér að boðskipti eru hröð og óformleg, talsvert er um mikil tengsl á milli tónlistarmanna úr alls kyns geirum og mörk á milli atvinnumennsku og áhugamennsku eru óljós.
Viðburðurinn er í Dynjanda, sal Tónlistardeildar, og er öllum opinn.

//

Samhengi lecture series welcomes Dr. Arnar Eggert Thoroddsen, Head of Academic Studies at the LHÍ Music Department, on Friday 27 November. His talk is titled The Icelandic Popular Music Community 1950–2020: A Sociological and Historical Approach.

The talk is about his book Icelandic Pop: Then, Today, Tomorrow, Next Week, published last autumn. The book draws partly on Arnar’s doctoral thesis, which examines the Icelandic music community through sociological theory. It traces the history of Icelandic popular music from the arrival of rock and roll, combining a historical narrative with the tools of sociology. His findings show that Iceland holds a fairly unique position compared with the popular music cultures of other countries. It is too small to compare directly with nations of millions, yet large enough to support distinct music communities and scenes, such as jazz, experimental music and hip hop. Because Iceland is a micro-society, it has developed a kind of “village character.” Communication is fast and informal, musicians from all kinds of genres are closely connected, and the line between professional and amateur is blurred.

The event takes place in Dynjandi, the Music Department’s hall, and is open to all.

Arnar Eggert Thoroddsen

Arnar Eggert Thoroddsen er doktor í tónlistarfræðum frá Edinborgarháskóla þar sem hann lærði undir handleiðslu hins kunna tónlistarfélagsfræðings Simon Frith. Hann er fagstjóri fræða við tónlistardeild Listaháskóla Íslands þar sem hann sinnir kennslu, leiðbeiningum og tilfallandi verkefnum. Arnar er auk þess virkur í rannsóknum og tengist nokkrum þannig netum á Norðurlöndum og í Bretlandi. Arnar hefur fjallað um tónlist í íslenskum fjölmiðlum í meira en kvartöld og hefur skrifað fjórar bækur um íslenska dægurtónlist, ýmist einn eða í samstarfi við aðra. Sú nýjasta, Icelandic Pop: Then, Today, Tomorrow, Next week kom út fyrir stuttu á vegum Reaktion Books í Bretlandi og The University of Chicago Press í Bandaríkjunum. Arnar er auk þess reglulegur álitsgjafi í fjölmiðlum um tólistarleg málefni og situr í fjölda nefnda og ráða sem að henni lúta.

Viðburður á Facebook