Dagsetning
12. nóvember 2026 – 14. nóvember 2026
Staðsetning
Kubbur - Laugarnes
Deild
Myndlistardeild
Allt sem ég er // Jakob Þór Smári
+ Bæta við

BA3 einkasýning í Kubbnum
Opnun 12. nóvember 17:00 – 19:00
Einnig opið 13. – 14. nóvember 14:00 – 19:00
——

Ég veit hver ég er og hvaðan ég kem. Það ljóta gerir fallegt fallegra. Minningar og hlutir verða aukaatriði. Það sem ég skapa stendur og fellur með mér. Ekkert hefur vægi umfram það sem við gefum því. Uppi á fjalli finn ég fegurð og frið, líka þótt ég komist ekki þangað sjálfur.

Allt sem ég er er sýning sem veitir innsýn í líf listamannsins, leiðin er gegnum málverkið og minnið.

——

Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.

Nánari upplýsingar um röðina má finna HÉR.

Facebook viðburður