Dagsetning
26. september 2026 – 27. september 2026
Staðsetning
Stóra black box, L223 - LHÍ Laugarnesi
Deild
Sviðslistadeild

Bergdís Júlía
MA í Sviðslistum
Sviðlistadeild
Útskriftarverk 2026

Manstu eftir að hafa stigið fæti inn í rými og fundið strax fyrir manneskjunni sem hafði verið þar á undan? Lyktinni sem hún skildi eftir sig? Vatnsbrúsanum á gólfinu, varalitnum á borðinu eða bara einhverri tilfinningu í loftinu?

Tónlist: Borgar Þórisson
Aðstoð við sviðsmynd: Arnar Hauksson
Smiður og hönnuður: Egill Ingibergsson
Lýsingarhönnun: María Jóngerð Gunnlaugsdóttir
Höfundur: Bergdís Júlía

Þakkir: Arnar Hauksson, pabbi, mamma, Amelía Dögun, Brimir Logi, Egill Ingibergsson, María Jóngerð og elsku bestu vinir mínir.

Leiðbeinandi: Hrefna Lind Lárusdóttir

Facebook viðburður

Praktískar upplýsingar um verkið:

Aðeins tveir í einu komast á verkið og fara inn á sama tíma um sitthvora hurðina. Verkið er 30 mínútur og ekkert hlé. Sýningardagar eru tveir og 5 slot verða í boði hvorn daginn.

Gestir velja sér sjálfir tíma með því að skrá sig HÉR.

Verkið er gagnvirkt og krefst mikillar þátttöku frá áhorfendum. Þátttakendur þurfa að vera berfættir og ganga að mestu einir í gegnum verkið. Mælt er með að koma með lesgleraugu séu þau notuð almennt við lestur. Tungumál verks er íslenska, (möguleiki á ensku).

Því miður er ekki hjólastólaaðgengi á þessari sýningu. Fólk sem ekki er sjáandi þyrfti að fá að fara í gegnum verkið með einhverjum sér við hlið, þar sem landslag verksins getur verið krefjandi.

Allar frekari upplýsingar um verkið og aðgengi verða sendar í tölvupósti til hvers þátttakanda.

Laugardagur – 26.09.2026

18:00 -18:40 = 2 áhorfendur
19:00 – 19:40 = 2 áhorfendur
20:00 – 20:40 = 2 áhorfendur
21:00 – 21:40 = 2 áhorfendur
22:00 – 22:40 = 2 áhorfendur

Sunnudagur – 27.09.2026

12:00 -12:40 = 2 áhorfendur
13:00 – 13:40 = 2 áhorfendur
14:00 – 14:40 = 2 áhorfendur
15:00 – 15:40 = 2 áhorfendur
16:00 – 16:40 = 2 áhorfendur

17:00 – Q&A

SKRÁNING HÉR