Dagsetning
12. nóvember 2026
Tími
13:00–15:00
Staðsetning
Skriða, LHÍ Stakkahlíð
Deild
Allar deildir · Sviðslistadeild
ON Research // Emotional Structures
+ Bæta við

ON Research sem er vettvangur innan skólans um rannsóknir í listum og að þessu sinni bjóðum við öllu fag- og áhugafólki um samtímadans velkomin að taka þátt í samtalinu, ásamt akademískum rannsakendum og meistaranemum við skólann. Viðburðurinn fer fram fimmtudaginn 12. nóvember kl 13 – 15 í fyrirlestrarsalnum Skriðu í húsnæði LHÍ að Stakkahlíð 1.

Brogan Davison og Katrín Gunnarsdóttir, prófessorar við sviðslistadeild, ásamt gestafyrirlesaranum Alessandro Tollari, velta fyrir sér hlutverki tilfinninga í kerfum okkar, bæði innra kerfi líkamans sem og samfélagsheildar. Í erindum sínum beina þau sjónum að því hvernig tilfinningar geta mótað skipulag og stofnanir á borð við skóla (Skóla tilfinninganna), hátíð (Reykjavík Dance Festival) eða listamannahóp (Marmarabörn). Leggja þau út frá tilfinningum sem vettvangi rannsókna og  fjalla um verkefni sem hafa mótað og breytt nálgun þeirra við mannleg tengsl, náms- og starfsumhverfi.

https://www.reykjavikdancefestival.com

Brogan Davison er prófessor og fagstjóri meistaranáms við sviðslistadeild, danshöfundur og sviðslistakona frá Bretlandi. Hún kynntist samstarfsmanni sínum til langs tíma, Pétri Ármannssyni, á Íslandi árið 2010 og vakti fyrsta verk þeirra, Dance for Me, alþjóðlega athygli innan sviðslistaheimsins og ferðaðist víða. Eftir meira en áratuga langt samstarf við gerð sviðsverka hafa þau nú stigið inn á vettvang viðburða og sýningargerðar sem listrænir stjórnendur Reykjavik Dance Festival frá árinu 2021.

Katrín Gunnarsdóttir starfar sem danshöfundur, dansari, rannsakandi og kennari. Hún er nú prófessor við Listaháskóla Íslands og námsbrautarstjóri BA-náms í samtímadansfræðum. Katrín lauk BA-prófi í dansi og danshöfundafræðum frá ArtEZ University of the Arts í Hollandi auk MSc-prófs í heilbrigðishagfræði og diplómanáms í fjármálahagfræði frá Háskóla Íslands. Samhliða eigin listsköpun er Katrín meðlimur í listamannahópnum Marmarabörn. Katrín situr í stjórn Þjóðleikhússins og gegndi formennsku í Norræna vettvangi dansrannsókna (Nordic Forum for Dance Research) á árunum 2024–2026.

Alessandro Tollari er doktorsnemi við Iuav-háskólann í Feneyjum og kennir jafnframt hugvísindi  í framhaldsskóla í heimaborg sinni, Tórínó. Doktorsverkefni hans, Otherworldly Schools: Worlding between Performing Arts and Radical Pedagogies, er listrannsóknarverkefni sem byggir á rannsóknum á útópíum, túlkunarfræðum og spekúlatífum frásagnaraðferðum. Verkefnið beinir sjónum með gagnrýnum hætti að skólastofnuninni í Evrópu samtímans og leitast við að kanna nýja möguleika til þess fallna að umbreyta hugmyndum okkar um menntun.

Alessandro starfar jafnframt sem ráðgjafi í fræðsluverkefnum hjá Lavanderia a Vapore (Fondazione Piemonte dal Vivo í Tórínó) og sem menningarráðgjafi og dramatúrg fyrir ýmsa aðila innan ítalskra sviðslista. Árið 2025 tók hann þátt í Independent Program hjá Institute for Postnatural Studies í Madríd og var gestanemi hjá Culture Commons Quest Office við Háskólann í Antwerpen. Hann er ritstjóri tímaritsins Roots & Routes – Research on Visual Cultures og aðjúnkt við Listaakademíuna í Napólí þar sem hann kennir uppeldis- og kennslufræði listrænna tjáningarforma.