Dagsetning
26. nóvember 2026 – 29. nóvember 2026
Staðsetning
Kubbur - Laugarnes
Deild
Myndlistardeild
Dregið frá // Kristín Gréta Jóhannsdóttir
+ Bæta við

BA3 einkasýning í Kubbnum
Opnun 26. nóvember 17:00 – 19:00
Einnig opið 27.-29. nóvember 15:00 – 17:00
——

Á milli þess innra og hins ytra ríkir stöðug spenna. Það sem hefur verið og það sem skildi eftir sig spor. Tíminn breytist, hægir á sér og hleypur frá okkur. Við sjáum hann aðeins að hluta. Það er ekki hægt að snerta hann eða skilja til fulls, samt hefur hann meiri áhrif á okkur en við gerum okkur grein fyrir.

Verk Kristínar Jóhannsdóttur einkennast af frjálsri frásögn. Málverk sem hún vinnur á ólíkan efnivið, svo úr verður þrívíð upplifun. Litirnir eru sterkir og tjáningarríkir. Myndefnið er nærtækt, hversdagslegt, en líka afskræmt og persónulegt. Til þess að hið innra fái að heyrast þarf að nota röddina, til þess að hún heyrist þarf einhver að hlusta.
——

Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.

Nánari upplýsingar um röðina má finna HÉR.

Facebook viðburður