Fyrirlestrarröðin Samhengi býður harmóníkuleikarann Jónas Ásgeir Ásgeirsson velkominn föstudaginn 6. nóvember með erindinu Þróun nýrra verka fyrir klassíska harmóníku. Á fáeinum áratugum hefur hin klassíska harmóníka skapað sér sess innan helstu tónlistarháskóla Evrópu og mörg fremstu tónskáld samtímans hafa samið verk fyrir hljóðfærið. Jónas Ásgeir mun fara yfir hina fjölbreyttu möguleika hljóðfærisins og ferli sitt í þróun nýrra verka í samstarfi við íslensk og erlend tónskáld.
Viðburðurinn er í Dynjanda, sal Tónlistardeildar, og er öllum opinn.
//
The lecture series Samhengi welcomes accordionist Jónas Ásgeir Ásgeirsson on Friday, November 6th, with the lecture Developing New Works for the Classical Accordion. In just a few decades, the classical accordion has established itself at Europe’s leading music conservatories, and many of today’s foremost composers have written for the instrument. Jónas Ásgeir will explore the instrument’s wide range of possibilities and his process of developing new works in collaboration with Icelandic and international composers.
The event takes place in Dynjandi, the Music Department’s hall, and is open to all.
Jónas Ásgeir Ásgeirsson
Jónas Ásgeir Ásgeirsson er klassískur harmóníkuleikari búsettur í Kaupmannahöfn þar sem hann lauk meistara-og einleikaranámi við Konunglega danska tónlistarháskólann. Jónas var valinn flytjandi ársins og hlaut verðlaun fyrir plötu ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2023 í flokki sígildrar-og samtímatónlistar. Einnig flutti Jónas fyrstur Íslendinga harmóníkukonsert með Sinfóníuhljómsveit Íslands og flutti seinna meir tvenna konserta með hljómsveitinni á Myrkum músíkdögum 2024. Hann hefur m.a. komið fram sem einleikari ásamt Athelas Sinfonietta, Caput Ensemble, kammersveitinni Elju og BIT20 ensemble. Framundan er flutningur á nýjum harmóníkukonsert úr smiðju Báru Gísladóttur ásamt Århus Sinfonietta. Einnig vinnur hann um þessar mundir að nýrri einleiksplötu hjá útgáfufyrirtækinu Sono Luminus.