Dagsetning
22. október 2026
–
24. október 2026
Staðsetning
Hulduland - Laugarnes
Deild
Myndlistardeild
Brotabrot // Hanna Lára Vilhjálmsdóttir
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.
+ Bæta við
BA3 einkasýning í Huldulandi
Opnun 22. október 17:00 – 19:00
Einnig opið 24. október kl. 15:00-17:00
——
Opnun 22. október 17:00 – 19:00
Einnig opið 24. október kl. 15:00-17:00
——
Minningar eru ritstýrðar, ég man brotabrot og fylli inn í eyðurnar. Bleiku crocs skórnir lágu á gólfinu. Ég man hvernig mér leið þegar ég sá þá, en ég veit ekki hvort mér hafi liðið þannig. En ef ég reyni og reyni þá man ég það kannski á annan hátt. Betri hátt. Ég er umkringd af endalausum minningum sem breytast og bjagast. Í þeim býr framtíð og fortíð. Ég skrifa og ég mála og ég man og ég man og ég man brotabrot af öllu sem var.
––––
––––
Minnið sem hráefni er tilfinningalegt og ólínulegt. Á meðan allt gerðist var sama styttan á sömu hillunni á sama veggnum með sama veggfóðrinu og safnaði ryki. Hversdagurinn er uppfullur af kyrralífsmyndum sem búa yfir hleðslu, sem Hanna Lára Vilhjálmsdóttir miðlar með olíu á striga eða vídeóverki.
——
Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.
Nánari upplýsingar um röðina má finna HÉR.