BA3 einkasýning í Naflanum
Opnun 15. október 17:00 – 19:00
Einnig opið 16. október kl. 16:00-18:00 & 17.-18. október kl. 15:00-18:00.
——
Ollie Birki Sánchez-Brunete vinnur skúlptúra úr margvíslegum efnivið, oft fundnum í nærumhverfinu á iðnaðarsvæðum eða niðri í fjöru, í uppbyggingu, niðurrifi, veðrun og rofi.
Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.
Nánari upplýsingar um röðina má finna HÉR.