Dagsetning
24. september 2026 28. september 2026
Tími
16:00
Staðsetning
Enni
Deild
Arkitektúrdeild

Meistaranemar í arkitektúr við Listaháskóla Íslands bjóða öll velkomin á spennandi
sýningu í Listaháskóla íslands / Stakkahlíð 1 – Enni

Frá 24. september til 2. október verður til sýnis úrval verka eftir Teiknistofuna Óðinstorgi (1965 – 2005). Á sýningunni verða til sýnis líkön og teikningar sem unnar voru á fyrstu vikum haustmisseris 2026 í námskeiðinu “sameiginlegar rannsóknir fram til hönnunarlausna”.

Líkön og teikningar skilgreina arkitektúr sem flókna samsetningu ólíkra þátta sem mynda byggingu þar sem tæknilegir og fagurfræðilegir eiginleikar, notagildi og upplifun rýmisins spila saman. Leiðbeinendur námskeiðsins eru Garðar Snæbjörnsson og Andri Gunnar Lyngberg Andrésson. Teiknistofan Óðinstorgi var stofnuð árið 1965 af bræðrunum og arkitektunum Helga og Vilhjálmi Hjálmarssonum ásamt verkfræðingnum Vífli Oddssyni. Á þessum 40 árum voru byggðar byggingar sem enn halda sjarma sínum og móta íslenska byggingarlist enn þann dag í dag.

Við hlökkum til að taka á móti þér á þessari hátíð íslenskrar byggingarlistar.
Sýningin opnar fimmtudaginn 24. september kl. 16:00 – 18:00.

Sýningin er einnig opin:
25. september 8:00 – 15:00
26. september 12:00 – 16:00
27. september 12:00 – 16:00
28. september – 2. október 8:00 – 15:00