Einkasýning í Kubbnum
Opnun 8. október 17:00 – 19:00
Einnig opið 10. og 11. október frá kl.13:00-16:00
——
Um er að ræða rúmgóða 122.5 fm, 5 herbergja íbúð á 4. hæð með sólríkum svölum út frá hjónaherbergi og góðu herbergi í kjallara með opnanlegum glugga. Að syrgja. Húsið er vel staðsett og liggur að Laugardalnum þar sem stutt er í fallega útivistarparadís, sundlaug, líkamsrækt, Grasagarðinn, Fjölskyldu og húsdýragarðinn, fallegar göngu og hjólaleiðir sem og leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og helstu verslanir.
Torfi Sveinn Ásgeirsson (f. 2004) býr og starfar í Reykjavík. Hann leitar uppi hið undirfurðulega og notar til þess þann miðil sem hentar hverju sinni. Verkinn byggja á misræminu milli hversdagslegra viðfangsefna og þeirrar óhóflegu vinnu sem lögð er í listsköpun. Hann málar olíumálverk, fremur gjörninga, gerir vídeó og skúlptúr svo eitthvað sé nefnt.
——
Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.