Andrea Lóa Guðnadóttir
Einkasýning í Naflanum
Opnun 17. september 17:00 – 19:00
Einnig opið 19 og 20. september 12:00-16:00
——
“Mig vantar uppskrift að innsetningu”. Ég fletti í dagblaðinu og viti menn, þar er hún.
Demantur, Reiðhjól, Ætisþistlar.
Orðin blandast sama, lárétt og lóðrétt, verða að einu og svo er ég komin inn í krossgátu.
Ég hoppa á milli línanna, skoða.
Það eru skýrar reglur þótt allt virðist vera handahófskennt.
Allt tengist ef betur er að gáð.
Ég fylli í eyðurnar, einn reit í einu og líður betur og betur með hverju orði sem myndast.
——
Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.
Nánari upplýsingar um röðina má finna HÉR.