Dagsetning
11. nóvember 2026
Tími
18:30–21:30
Staðsetning
Dynjandi, Skipholt 31
Deild
Tónlistardeild
Þematónleikar – Sergei Prokofiev
Þematónleikar Píanódeildar - Sergei Prokofiev
+ Bæta við
Á miðvikudagskvöld halda píanónemendur tónlistardeildar LHÍ þematónleika í Dynjanda.
Á hverri önn velur deildin þema sem lýkur með tónleikum. Í þetta sinn hafa nemendur unnið með tónlist rússneska tónskáldsins Sergei Prokofiev. Á efnisskránni eru meðal annars sónötur, Visions fugitives, Sarcasms og svíta úr Öskubusku fyrir tvö píanó. Píanónemendur úr MÍT og Tónskóla Sigursveins taka einnig þátt.
Tónleikarnir eru tvennir, kl. 18:30 og 20:00. Boðið verður upp á létt snarl milli tónleika.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.