Dagsetning
5. nóvember 2026 – 8. nóvember 2026
Staðsetning
Hulduland - Laugarnes
Deild
Myndlistardeild
BOBALO // Teitur Emil Vähäpassi
+ Bæta við

BA3 einkasýning í Huldulandi
Opnun 5. nóvember 17:00 – 19:00
Einnig opið 7. & 8. nóvember 14:00 – 18:00
——

Hráefnin eru framleidd í hliðarveröld. Teikningin getur verið strengur inn í efnisheiminn. Ávextir hrynja í jörðina og gefa næringu. Ég byggi rennibraut til að koma bútum af mér niður. Form í lifandi hreyfingu og flæði, það er æði.

Skúlptúrar Teits Emils Vähäpassi eru form úr lifandi hreyfingu. Þeir spretta upp af teikningum hans, unnum hratt, með blýanti á pappír, sveigðar línur úr furðuheimi. Myndheimur hans er tjáningarríkur, óræður en unninn af mikilli nákvæmni, oftast í tré og textíl.

——

Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.

Nánari upplýsingar um röðina má finna HÉR.

Facebook viðburður