Dagsetning
8. desember 2026
Tími
10:00–12:00
Staðsetning
Flyglasalur, Skipholt 31, 105 RVK
Deild
Tónlistardeild
Marion Treupel-Franck
+ Bæta við

Flautuleikarinn Marion Treupel-Franck heldur meistaranámskeið og fyrirlestur um barokkflautu í Flyglasal, Listaháskóla Íslands þann 8. desember kl. 10:00.

Marion Treupel-Franck er þýskur flautuleikari og kennari sem hefur sérhæft sig í barokkflautu og sögulegum flutningi. Hún nam flautuleik í Salzburg, Innsbruck og Vín og sérhæfði sig síðar í barokkflautu hjá Barthold Kuijken við Koninklijk Conservatorium í Brussel, þar sem hún lauk einleikaraprófi árið 1998.

Hún hefur átt fjölbreyttan feril sem einleikari og kammermúsíkant og komið fram með fjölmörgum þekktum barokksveitum, meðal annars Bach Collegium Japan, La Stagione Frankfurt og Münchener Bach-Orchester. Tónleikaferill hennar hefur leitt hana víða um Evrópu auk Suður-Afríku, Mið-Ameríku, Ástralíu, Kína og Japan.

Samhliða tónleikahaldi hefur hún um árabil kennt barokkflautu við tónlistarháskólana í München og Regensburg og haldið masterklassa og námskeið víða um heim.

Fyrirlesturinn og meistaranámskeiðið fara fram í Flyglasal á 3. hæð í tónlistardeild LHÍ. Viðburðir Listaháskóla Íslands eru öllum opnir.