Tónlistardeild LHÍ tekur á móti ítalska píanóleikaranum og prófessornum Andrea Micucci frá Conservatorio Puccini í Gallarate.
Þriðjudagskvöldið 20. október kl. 18:00 heldur hann tónleikafyrirlestur í Dynjanda. Við upphaf 20. aldar fóru evrópsk tónskáld að brjóta upp hefðbundin kerfi og föst form. Lengi vel mætti frönsk-rússneski straumurinn tortryggni í tónlistarfræðum, ekki síst undir áhrifum Theodors W. Adorno. Með skrifum Vladimirs Jankélévitch og Stefans Jarocińskis hefur þessi straumur fengið nýtt mat sem ein mikilvægasta hreyfing tónlistarsögunnar, sterklega bundin táknhyggju. Micucci byggir á verkum þeirra og veltir upp hugmyndum að túlkun þessara meistaraverka.
Efnisskrá
Aleksandr Skrjabín – Impromptu op. 14
Gabriel Fauré – Impromptu nr. 1 op. 25 og nr. 5 op. 102
Claude Debussy – Images, 1. bók
Miðvikudaginn 21. október kl. 13:00 kennir hann masterklass í píanóleik, einnig í Dynjanda.
Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin.