Dagsetning
17. september 2026 20. september 2026
Staðsetning
Kubbur - Laugarnes
Deild
Myndlistardeild

Svava Dögg Ugluspegill Ástu
Einkasýning í Kubbnum
Opnun 17. september 17:00 – 19:00
Einnig opið 19 og 20. september 12:00-17:00
——

Málverkið er af bið eftir þjónustu, greiningum, úrræðum. Líflínu sem endar hvergi. Innsetningin er biðstofa en skrifstofan er lokuð.

Komdu á morgun.

Kemur í ljós.

Af slysó á bráðamóttöku Geðdeildar.

Aftur á Slysó.

Reyndu aftur í fyrramálið ef þú verður á lífi.

Verk Svövu Daggar eru persónulegs og samfélagslegs eðlis. Þau byggja oft á reynslu hennar og annarra af kerfi sem er ekki gert fyrir fólk. Regluverk sem jafnvel hindrar að hjálpin skili sér.

‘Málverkið er af því sem er eftir í augnablikinu. Ég hafði séð fyrir mér að fara út með strigann og sleppa öllu lausu og mér fannst það svo ógeðslega góð hugmynd og ég hlakkaði til en svo var ekkert eftir, ekki í augnablikinu.’

//

Í Nei, en takk samt. vinnur Svava Dögg með málverk, texta og innsetningu. Kveikjan að sýningunni liggur meðal annars í sorginni eftir missi litlu systur hennar og þeirri reynslu að þurfa sjálf að finna leið til að vinna úr sorg þegar viðeigandi stuðningur var ekki til staðar. Sú persónulega reynsla tengist stærri spurningum um hjálp, bið, höfnun og ábyrgð samfélagsins gagnvart fólki sem þarf á stuðningi að halda.

Innblástur sýningarinnar kemur jafnframt frá reynslu annarra af íslenskum kerfum; frásögnum af langri bið eftir þjónustu, greiningum og úrræðum og tilfinningunni að þurfa ítrekað að sanna að þörfin fyrir hjálp sé raunveruleg.

Svava Dögg vinnur þvert á miðla og sækir efnivið í persónulega reynslu, tilfinningar og aðstæður sem erfitt getur verið að setja í orð. Í verkum hennar mætast hið persónulega og samfélagslega og hún hefur áhuga á því hvað gerist þegar reynsla einstaklingsins rekst á kerfi, reglur og úrræði sem eiga að vera til staðar en reynast ekki alltaf aðgengileg þegar mest á reynir.

——

Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026.

Nánari upplýsingar um einkasýningaröðina má finna HÉR.

Facebook viðburður