Farið verður í ferðalag frá Reykjavík til Feneyja með stoppi á fjölmörgum stöðum á leiðinni. Fjallað verður um aðdraganda og þróun sýningarinnar Pocket Universe, samstarfið að baki sýningunni og ferðalagið frá Reykjavík til Feneyja, þar sem Ásta Fanney tekur þátt fyrir Íslands hönd í 61. alþjóðlega myndlistartvíæringnum 2026.
Sýningin Pocket Universe opnaði í byrjun maí og lýkur í nóvember á þessu ári.
Unnar Örn útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1999 og lauk í framhaldi mastersnámi við Listaháskólann í Malmö. Hann hefur sýnt á fjölmörgum einka og samsýningum hérlendis sem og erlendis síðustu 25 árin. Verk Unnars eru í eigu allra helstu safna og menningarstofnana hér á landi auk einkasafna í Evrópu og Bandaríkjunum. Samhliða stúdíóvinnu hefur Unnar sinnt ýmsum hlutverkum á sviði lista ss. sýningargerð, ritstjórn, skrifum, kennslu og fjölbreyttum félagsstörfum.
Fyrirlestraröð er haldin á hverri önn í Myndlistardeild Listaháskóla Íslands og er opin þvert á deildir skólans og almenningi. Í sjö fyrirlestrum á önninni fjalla sérfræðingar á vettvangi myndlistar um eigin rannsóknir, tilraunir og listsköpun.
Fyrirlesturinn fer fram í fyrirlestrasal í LHÍ Laugarnesi að Laugarnesvegi 91, 105 Reykjavík.