Dagsetning
19. nóvember 2026 – 22. nóvember 2026
Staðsetning
Hulduland - Laugarnes
Deild
Myndlistardeild
… // Kolbrún Hulda Geirsdóttir
+ Bæta við

BA3 einkasýning í Huldulandi
Opnun 19. nóvember 17:00 – 19:00
Einnig opið 21. – 22. nóvember 15:00 – 18:00
——

Rétt í þessu átti sér heilög umbreyting stað. Unglingarnir sjö hafa lofað að snúa baki við djöflinum og öllum hans verkum; þeim hefur verið dýft í hlýja laug. Nú rísa þau upp, endurfædd og rennandi blaut. Þau hitta mig baksviðs, það er kvöld og dimmt og svolítið erfitt að ná fókus á myndavélina. Þeim er kalt, en þau bíða þolinmóð, leyfa mér að taka mynd. Ég þarf að biðja þau um að hætta að brosa, sem þeim tekst ekki alltaf. Svo fara þau og skipta um föt áður en samkoman hefst.

Kolbrún Hulda Geirsdóttir (f. 2002) vinnur ljósmyndaverk innan rýma sem ekki eru aðgengileg öllum. Með linsu sinni skoðar hún það sem liggur á milli línanna og skrásetur hið ósagða.
——

Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.

Nánari upplýsingar um röðina má finna HÉR.

Facebook viðburður