Dagsetning
22. október 2026
Staðsetning
Kubbur - Laugarnes
Deild
Myndlistardeild
Stórtónleikar Karlakórsins Stórkórs // Jórunn Elenóra Haralds
Einkasýning 3 árs BA nema í myndlist.
+ Bæta við
BA3 einkasýning í Kubbnum
Opnun 22. október 17:00 – 19:00
Gjörningur hefst 17:15 og svo aftur 18:10
——
Opnun 22. október 17:00 – 19:00
Gjörningur hefst 17:15 og svo aftur 18:10
——
Í verkum sínum tekst Jórunn Elenóra Haraldsdóttir á við sívaxandi pólitíska spennu í íslensku samfélagi og leitast við að varpa ljósi á tíðarandann. Áhorfendum er boðið að stíga inn í verk hennar og verða þar með þátttakendur og fá tækifæri til að skoða pólitíska þróun samtímans frá óvæntu sjónarhorni og endurmeta eigin viðbrögð við henni.
Jórunn vinnur skúlptúr og gjörninga. Á Stórtónleikum karlakórsins Stórkórs gegnir hún hlutverki stofnanda og stjórnandi, þar sem hún nýtir kraft fjöldans til að virkja rýmið og áhorfandann.
——
——
Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.
Nánari upplýsingar um röðina má finna HÉR.