Dagsetning
12. nóvember 2026
Tími
17:00–18:00
Staðsetning
Dynjandi, Skipholt 31
Deild
Tónlistardeild
Flaututónleikar
Flautunemendur LHÍ og Konunglega tónlistarháskólans í Árósum
+ Bæta við
Á fimmtudaginn halda flautunemendur LHÍ og Konunglega tónlistarháskólans í Árósum sameiginlega tónleika í Dynjanda.
Flutt verða verk eftir J. S. Bach, G. Fauré, I. Stravinsky, Ian Clarke og Þorkel Sigurbjörnsson. Með nemendunum koma fram kennarar þeirra, Emilía Rós Sigfúsdóttir og Lena Kildahl Larsen, ásamt píanóleikaranum Maren Marie Tange.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.