Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á Íslensku
Norræna Dansfræðafélagið (NOfOD) stendur fyrir sinni 17. alþjóðlegu ráðstefnu dagana 23. – 26. júní næstkomandi. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Listaháskóla Íslands og fer fram í húsnæði skólans í Stakkahlíð.
Ráðstefnan var síðast haldin á Íslandi árið 2015, en hún er haldin annað hvert ár og ferðast milli Norðurlandanna. Þetta er einstakt tækifæri á Íslandi að hlýða á fjölmörg erindi fræðimanna og listamanna í dansrannsóknum, en það hafa um 80 erlendir gestir boðað komu sína.
Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Centre & Periphery: Dance, Identity & the Politics of Place, og sækir innblástur í hina einstöku landfræðilegu stöðu Íslands. Út frá einu sjónarhorni mætti segja að Ísland sé á jaðrinum í norrænu samhengi, en sé sjónarhornið víkkað út er hægt að segja að þessi eldfjallaeyja liggi milli heimsálfa, miðpunktur á flekaskilum. Þessi hugmyndafræðilega spenna milli miðju og jaðars þjónar sem útgangspunktur til að kanna hvernig rannsóknir í dansinum takast á við spurningar um stigveldi, ímynd, aðgengi, hefðir og því að tilheyra í sögulegu, félagslegu og listrænu samhengi.
Aðalfyrirlesarar eru Karen Arnfred Vedel dósent við Kaupmannahafnarháskóla, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir listrænn stjórnandi Íslenska Dansflokksins og Saul Garcia-Lopez, aka La Saula prófessor við Norska Leiklistarskólann í Frederikstad og listræna stjórnanda La Pocha Nostra.
Hægt er að lesa ágrip þeirra hér: https://www.nofod.org/reykjavik-conference-2026/keynotes/
Dagskrá ráðstefnunnar er að finna á vefsíðu NOfOD: https://www.nofod.org/reykjavik…/conference-program/
Skráning og ráðstefnugjöld: https://www.nofod.org/reykjavik…/practical-information/
—
Norræna Dansfræðafélagið (NOfOD) eru samtök sem stuðla að samstarfi milli dansfræðinga og dansiðkenda á Norðurlöndum og víðar. NOfOD skipuleggur málstofur og ráðstefnur, auk þess að miðla upplýsingum með umræðum, sýningum og útgáfum um dans. Tilgangur samtakanna er að efla, styrkja og sameina fjölbreyttar tegundir dansrannsókna, þekkingar og iðkunar, sérstaklega í norrænu samhengi. www.nofod.org