Dagsetning
5. nóvember 2026 – 8. nóvember 2026
Staðsetning
Kubbur - Laugarnes
Deild
Myndlistardeild
CARCOSA // Friðrik Dagur Kristófersson
+ Bæta við

BA3 einkasýning í Kubbnum
Opnun 5. nóvember 17:00 – 19:00
Einnig opið 7. & 8. nóvember 15:00 – 18:00
——

Nótt eina er ég vaknaði var ég ekki lengur í borginni þarsem ég hafði sofnað, heldur í Carcosa. Ég vissi ekki hvernig ég hafði komist þangað. Göturnar voru tómar og óskýrar. Ljós loguðu í gluggum en enginn virtist vera þar fyrir innan. Ef ég horfði of lengi varð ég þreyttur á bakvið augun. Borgin var kunnugleg, einsog ég hefði verið þar áður, eins og minning eða draumur. Stundum var einsog eitthvað væri að fylgjast með mér, en ég veit ekki hvað það var. Ég veit ekki hvort ég vil komast að því.

Borg Gulklædda Konungsins Carcosa, kom fyrst fram í smásögu eftir Ambrose Bierce frá 1886, og hefur síðan birst í fjölmörgum skáldsögum, sjónvarpsþáttum og tölvuleikjum. Borgin Carcosa er þannig orðin að sameiginlegu dulvituðu rými. Friðrik Dagur Kristófersson málar olíumálverk sem byggja á draumum og minningum af stöðum sem hann hefur heimsótt í raunveruleikanum og í skáldskap. Málverkin sýna sálrænt borgarlandslag, þarsem unnið er úr ljósu yfir í dökkt og forgrunnur rennur saman við bakgrunn.

——

Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.

Nánari upplýsingar um röðina má finna HÉR.

Facebook viðburður