Dagsetning
19. september 2026
Tími
16:00–18:00
Staðsetning
Verksmiðjan á Hjalteyri
Deild
Myndlistardeild

Undanfarin tíu ár hafa nemendur á fyrsta ári við meistaranám Myndlistardeildar dvalið eina viku á Hjalteyri sem hluti af vinnustofu haustannar.

Verkefnið er samvinnuverkefni Verksmiðjunnar á Hjalteyri og Listaháskóla Íslands. Nemendur setja upp sýningu í Verksmiðjunni þar sem saga verksmiðjunnar og sérstaða staðarinns er efniviður og viðfangsefni verka þeirra.

Að þessu sinni dvelja níu nemendur LHÍ ásamt tveimur KUNO nemendum á Hjalteyri frá 13. – 20. september. Sigurður Guðjónsson, myndlistarmaður og prófessor við Listaháskóla Íslands, leiðir vinnustofuna ásamt Gústav Geir Bollasyni, myndlistarmanni og stofnanda Verksmiðjunnar.

Dvöl meistaranemanna lýkur með sýningunni ,,murmuration“ sem opnar í Verksmiðjunni á Hjalteyri nk. laugardag 19. september milli kl. 16:00-18:00.

All welcome.

FACEBOOK EVENT

Nemendur:
Andrea Haugerud Hovik
Álfur Tumi Elfuson
Heiðrún Gréta Viktorsdóttir
Kasper Boelens
Kristine Rød
Patricia Spyrakos
Victoria Björk Ferrell
Carla Maruscha Fellenz
Klaudyna Szymańska
Patric N. Lindström
Simen Fische Strand